Landsbankamótin – vetrarmótaröð Sörla 2007

Landsbankinn og hestamannafélagið Sörli hafa samið um að Landsbankinn verði styrktaraðili mótaraðar Sörla í vetur. Vetrarmótaröð Sörla kallast nú Landsbankamótin. Um er að ræða þrjú mót sem haldin verða í febrúar, mars og apríl. Fasteignasalan Hraunhamar í Hafnarfirði styrkti mótin...

Landsbankinn og hestamannafélagið Sörli hafa samið um að Landsbankinn verði styrktaraðili mótaraðar Sörla í vetur. Vetrarmótaröð Sörla kallast nú Landsbankamótin. Um er að ræða þrjú mót sem haldin verða í febrúar, mars og apríl. Fasteignasalan Hraunhamar í Hafnarfirði styrkti mótin undanfarin ár.

Veitt eru verðlaun fyrir árangur í hverju móti fyrir sig en auk þess safna keppendur stigum. Keppt er á beinni braut á öllum mótum. Á tveimur fyrstu mótunum er keppt í tölti. Þriðja mótið er svokallað þrígangsmót þar sem keppendur etja saman klárhestum og alhliða hestum. Á mótunum verður einnig keppt í 100 m skeiði. Fyrirkomulag móta er einfalt, keppt er í öllum flokkum og mótin eru opin öllum hestamönnum.

Landsbankamót I – 24. febrúar: Töltkeppni á beinni braut og 100 m skeið
Landsbankamót II – 17 mars: Töltkeppni á beinni braut og 100 m skeið
Landsbankamót III – 21. apríl : Þrígangsmót á beinni braut og 100 m skeið

,,Það er okkur sönn ánægja hér í Landsbankanum í Hafnarfirði að styðja við bakið á hestamannafélaginu Sörla

og þessari sívaxandi fjölskylduíþrótt þar sem bæði háir og lágir koma saman og njóta samveru við hesta og náttúru”,

sögðu þeir Matthías Gíslason, útbústjóri Landsbankans í Fjarðargötu og Gísli Björgvinsson, sölustjóri Landsbankans í Hafnarfirði, um samstarfið við Sörla.

Mótanefnd Sörla fagnar samningum við Landsbankann. Vetrarmótin hafa verið vinsæl undanfarin ár og þátttaka Landsbankans er mikilvægur þáttur í að auka veg þeirra enn frekar. Fasteigasölunni Hraunhamri er þakkað fyrir frábæran stuðning við vetrarmótin á liðnum árum.

Landsbankamótið fer fram laugardaginn 24. febrúar. Reglur um keppnisfyrirkomulag og stigasöfnun verða birtar fljótlega.

Mótanefnd hestamannafélagsins Sörla.