Leitað að hestum úr flugvél

Hestar í eigu Úlfs Úlfarssonar, verslunareiganda á Ísafirði, struku úr girðingu frá heimili hans í Arnardal í Skutulsfirði á gamlársdag. „Á nýársdag tók ég eftir því að þeir voru farnir og höfðu brotið niður fimm staura. Ég hélt að þeir...

Hestar í eigu Úlfs Úlfarssonar, verslunareiganda á Ísafirði, struku úr girðingu frá heimili hans í Arnardal í Skutulsfirði á gamlársdag. „Á nýársdag tók ég eftir því að þeir voru farnir og höfðu brotið niður fimm staura. Ég hélt að þeir hefðu farið inn í Arnardal og hafði ekki áhyggjur af þeim.

Ég fór í göngu inn Arnardalinn s.l. fimmtudag en sá þá hvergi. Á sunnudag gekk ég frá Súðavík og niður í Arnardal og heim en þar var enga hesta að sjá,“ segir Úlfur en hann tók á það ráð að fara flugferð í dag með Erni Ingólfssyni til þess að leita að hestunum.

„Við fórum alveg inn í Seyðisfjörð á vélinni og einu hestana sem var að sjá voru hestarnir hans Guðmanns í Seyðisfirði,“ segir Úlfur. Hann telur að þeir hafi hræðst vegna flugelda á nýársnótt og biður fólk sem verður vart við hestana að hafa samband við sig í síma 897 6760.

/visir.is