Ég hef tekið saman skrá yfir þá litföróttu fola sem eru til ógeltir í landinu, vorið 2007 og hafa náð tveggja vetra aldri. Þetta er gert til þess að hrossaræktendur eigi aðgang að yfirliti og eigi auðveldara með að velja sér fola, ef hugur þeirra stendur til þess að eignast þennan lit.
Enginn áróður verður hafður í frammi en mönnum bent á að nú þegar er einn þessara fola kominn með 1. verðlaun og að hér eru margir efnilegir ungir folar á skrá og því allrar athygli verðir, þó ekki sé liturinn hafður sérstaklega í sigtinu. Það er því úr ýmsu að velja í þessu samhengi.
Ef menn vita af fleiri ógeltum litföróttum folum og folöldum, sem eru líkleg til þess að verða notuð til undaneldis, væri gott að fá um það símtal eða netskeyti (s: 568.6052 – 821.8646 – pimsland@islandia.is)
Staðsetning folanna í sumar er ekki í öllum tilvikum ákveðin. Folarnir eru taldir í aldursröð og síðan eftir stafrófsröð innan hvers fæðingarárs:
1) Blámi frá Bár, 1997, grár litföróttur (fæddur brúnn) – taminn og sýndur, úrvals góður hestur
F: Dynur frá Svínafelli, sonarsonur Oturs frá Sauðárkróki
M: Svalbrá 7646 frá Bár, út af Blíðu frá Uxahrygg af Sleipniskyni
Eig: Halla Bjarnadóttir og Niklaus Nyström, Ártúnum, s: 487.5191
Verður í Ártúnum, Rang.
2) Gjafar frá Eyrarbakka, 1998, rauður litföróttur – taminn og sýndur, 1. verðl. hestur
F: Vikingur frá Voðmúlastöðum
M: Litbrá frá Snjallsteinshöfða, Litfaradóttir frá Helgadal
Eig: Ellert Vigfússon, Garðabæ o.fl., s: 690.0877
Verður í Ásholti í Ásahreppi
3) Bjálmi frá Bjálmholti, 2000, brúnskjóttur litföróttur – taminn góður klárhestur með tölti. Gefur ekki einlitt.
F: Mökkur frá Litla-Hofi í Öræfum, Dynssonur (frá Svínafelli)
M: Gjörð frá Bjálmholti, rauðskjótt heimahryssa í Bjálmholti
Eig: Monika Kimpfler, Hrafkelsstöðum, s: 437.1849 – 896.3749
Verður á Hrafnkelsstöðum á Mýrum
4) Helmingur frá Sléttubóli, 2000, brúnlitföróttur – taminn
F: Andvari frá Sléttubóli, Orrasonur frá Þúfu
M: Hremsa frá Sléttubóli, brúnlitförótt af Litfarakyni frá Helgadal
Umsj: Vignir Siggeirsson, Hemlu, s: 487.7857 – 894.3106
Verður í Holti undir Eyjafjöllum í umsjón séra Halldórs
5) Flugar frá Efra-Seli á Stokkseyri, 2002, jarplitföróttur
F: Kormákur frá Flugumýri, af Höfða-Gustskyni
M: Lukku frá Lækjarskógi, af Erpskyni
Umsj: Harpa Jónsdóttir, Hjarðarfelli, s: 435.6665 – 844.0434
Verður á Hjarðarfelli á Snæfellsnesi
6) Litfari frá Lækjarskógi í Dölum, 2002, rauðstjörnóttur litföróttur – taminn
F: Toppur frá Eyjólfsstöðum
M: Arabía frá Lækjarskógi
Eig: Eyþór Jónsson og Eyþór Jóhannsson, Akureyri s: 462.3403 – 862.3828
Verður á Akureyri
7) Logi frá Ásamýri í Ásahreppi Rang, 2002, rauðlitföróttur
F: Gjafar frá Eyrarbakka
M: Hrafntinna frá Ásmúla.
Eig: Sigurbjörn T. Gunnarsson, Ásamýri, s: 487.6650 – 898.1230
Verður í Ásamýri í Ásahreppi
Loki frá Hamraendum í Dölum, 2002, jarplitföróttur – taminn hestur
F: Rómur frá Búðardal, Ófeigssonur frá Flugumýri
M: Lukka frá Búðardal, Stígandadóttir frá Sauðárkróki af Hremmsukyni í Ólafsdal
Eig: Skjöldur Orri Skjaldarson, Hamraendum, s: 434.1650 – 899.2621
Verður á Hvoli í Vestur-Hópi
9) Aldur frá Skeggsstöðum í Svartárdal, 2003, rauðstjörnóttur litföróttur ljósfextur
F: Litfari frá Lækjarskógi, af Litfarakyni frá Helgadal
M: Huld Skeggsstöðum, undan Vonar-Neista frá Skollagróf
Umsj.: Ester Anna Eiríksdóttir Hólakoti s: 897.5756
Verður í Hólakoti í Eyjafirði
10) Hreimur frá Kaldbaki, 2003, rauðblesóttur litföróttur ljósfextur – frumtaminn hestur, lofar góðu, mjög stæðilegur
F: Litfari frá Lækjarskógi, af Litfarakyni frá Helgadal
M: Dama frá Kaldbaki, af Höfða-Gustskyni
Eig. Ásgeir Gestsson, Flúðum, s: 486.6734 – 863.3011
Verður á Galtafelli í Hrunamannahreppi
11) Hróarr frá Vatnsleysu, 2003, jarplitföróttur
F: Arnar frá Vatnsleysu, Smárasonur frá Borgarhóli
M: Heiður frá Vatnsleysu, Erpsdóttir frá Erpsstöðum
Eig: Björn Jónsson, Vatnsleysu, s: 453.6556 – 894.2833
Verður á Vatnsleysu
12) Segull Hátúni í A-Landeyjum, 2003, brúnlitföróttur tvístjörnóttur hringeygður – frumtaminn hestur
F: Snillingur frá Vorsabæ, Forsetasonur
M: Hátíð í Hátúni, af Litfarakyni frá Helgadal
Eig: Björn Jónsson, Vorsabæ II, s: 486.5522 – 861.9634
Verður í Vorsabæ II á Skeiðum
13) Stígandi frá Lækjarskógi, 2003, brúnlitföróttur
F: Gammur frá Sauðárkróki, Oturssonur
M: Litbrá frá Lækjarskógi, af Norðtungukyni og Litfarakyni frá Helgadal
Eig: Gunnar Sigurður Magnússon, Hafnarfirði, s: 868.5849
Verður á Langárfrossi hjá Hilmari Sigurðssyni
14) Tvistur frá Skarði, 2003, brúnlitföróttur
F: Heimir frá Vatnsleysu, Glampason
M: Blíða Króktúni, sonardóttir Kolfinns frá Kvíarhóli
Umsj. Kristinn Guðnason, Árbæjrahjáleigu, s: 487.5258 – 847.1179
Verður á Arngilsstöðum í umsjón Guðbjörns Ingvarssonar á Hellu
15) Karri frá Höskuldsstöðum, 2004, brúnlitföróttur
F: Huginn frá Höskuldsstöðum undan Höfða-Gusti
M: Gleði frá Höskuldsstöðum undan Þyt frá Enni
Eig: Jóhann Þorsteinsson, Sauðárkróki, s: 453.8280 – 896.5080
Verður á Syðstu-Grund hjá Sæmundi Sigurbjörnssyni
16) Akkilles frá Mýrum, 2004, dökkjarpur litföróttur F: Þytur frá Mýrum undan Drottningu frá Mýrum og Núma frá Þóroddstöðum
M: Mánadís frá Mýrum undan Mána Feykissyni 962 og Sleggju frá Mýrum.
Eig: Páll Eggertsson, Mýrum, s: 487.1351 – 848.3338
Verður á Mýrum í Álftaveri
17) Farvi frá Langárfossi, 2004. dökkrauður stjörnóttur litföróttur
F: Glampi frá Langárfossi undan Kolfinnssyni frá Kjarnholtum
M: Mön frá Svínafelli undan Jó frá Kjartansstöðum
Eig: Hilmar Sigurðsson, Langárfossi, s: 437.1845
18) Stirnir frá Langárfossi, 2004, rauðstjörnóttur litföróttur glófextur.
F: Stjarni frá Lækjarskógi undan Nökkva frá Hólmi A-Landeyjum,
M: Örvera frá Guðnabakka undan Hervarssyni
Eig: Hilmar Sigurðsson, Langárfossi, s: 437.1845
19) Skjanni frá Langárfossi, 2004, rauðskjóttur litföróttur.
F: Stjarni frá Lækjarskógi undan Nökkva frá Hólmi A-Landeyjum,
M: Kisa frá Langárfossi undan Höfða-Gustssyni
Eig: Hilmar Sigurðsson, Langárfossi, s: 437.1845
20) Herkúles frá Vatnsleysu, 2005, brúnlitföróttur
F: Glampi frá Vatnsleysu, af Hrafnskyni 802 og Lýsings frá Voðmúlastöðum
M: Heiður frá Vatnsleysu (1. verðl.), Erpsdóttir
Umsj: Björn Jónsson, Vatnsleysu, s: 453.6556 – 894.2833
Verður á Vatnsleysu














