Myndband af atriðinu “Ljóskur að leik” sem Mette Mannseth og Happdís frá Stangarholti sýndu svo eftirminnilega á Stórsýningu Fáks er komið inná Vefsjónvarp Hestafrétta. Mette sýnir okkur fullkomið samband milli manns og hests, hryssan gerir allt fyrir Mette. Leiðtogahlutverkið og virðingin er aðdáunarverð.
Öll atriði frá sýningunni verða birt hér á vef Hestafrétta innan skamms.
Smelltu HÉR til að sjá myndbandið.














