Folatollurinn sem er í vinning þegar keppt verður í slaktaumatölti í MD VÍS er tollur undir Dug frá Þúfu. Dugur er klárhestur sem vakti mikla athygli í 5. vetra flokknum á Landsmótinu í sumar þar sem hann hafnaði í fjórða sæti og hlaut 8,42 í aðaleinkunn, 8,35 fyrir byggingu og 8,46 fyrir hæfileika. Hann er með 9,5 fyrir fegurð í reið og 9,0 fyrir tölt, brokk, stökk, og vilja og geðslag. Faðir hans er Sveinn-Hervar frá Þúfu og móðirin er Dröfn frá Þúfu.
Happdrættismiðinn kostar aðeins 1.000 krónur og verða eingöngu 250 miðar seldir.














