Keppnislið Meistaradeildar VÍS 2010
 
  Málning
   
Sigurður V. Matthíasson, liðsstjóri
    Valdimar Bergstað
    Eyjólfur Þorsteinsson

Frumherji
   
Viðar Ingólfsson, liðsstjóri 
    Jakob S. Sigurðsson 
    Ólafur Ásgeirsson
 
Hestvit/Árbakki
   
Hulda Gústafsdóttir, liðsstjóri
    Hinrik Bragason
    Teitur Árnason
 
Lýsi
    
Sigurður Sigurðarson, liðsstjóri 
    Halldór Guðjónsson
     Lena Zielinski
 
TopReiter
   
Guðmundur Björgvinsson, liðsstjóri
     Þorvaldur Árni Þorvaldsson
     Daníel Jónsson
 
Lífland
   
Sigurbjörn Bárðarson, liðsstjóri
     Ragnar Tómasson
     Árni Björn Pálsson
 
 Auðsholtshjáleiga
    
Þórdís Erla Gunnarsdóttir, liðsstjóri
     Artemisia Bertus
     Bylgja Gauksdóttir
 
Lið Meistaradeildar VÍS 2009
 
Í ár eins og undanfarin ár eru keppendur í deildinni 21 og liðin 7. Liðin eru eftirfarandi:

Auðsholtshjáleiga
Þórdís Erla Gunnarsdóttir, liðsstjóri
Artemisia Bertus
Bylgja Gauksdóttir

Árbakki / Hestvit
Hulda Gústafsdóttir, liðsstjóri
Hinrik Bragason
Teitur Árnason

Frumherji
Viðar Ingólfsson, liðsstjóri
Jakob Svavar Sigurðsson
Ólafur Ásgeirsson

Lífland
Sigurbjörn Bárðarson, liðsstjóri
Árni Björn Pálsson
Ragnar Tómasson

Lýsi
Sigurður Sigurðarson, liðsstjóri
Halldór Guðjónsson
Lena Zielinski

Málning
Sigurður Vignir Matthíasson, liðsstjóri
Eyjólfur Þorsteinsson
Valdimar Bergstað

Top Reiter
Guðmundur Björgvinsson, liðsstjóri
Daníel Jónsson
Þorvaldur Árni Þorvaldsson
 

 

Lið Meistaradeildar VÍS 2008

Fullskipuð eru sex lið í liðakeppni Meistaradeildar VÍS 2008. Liðakeppnin er með heldur breyttu sniðu en síðastliðið ár og er tilgangurinn að efla hópanda liðanna og fá inn metnaraðfulla eigendur sem eykur á spennu. Fjórir knapar eru í hverju liði. 



Viðtöl og ljósmyndir / Heimild: Handbók Meistaradeildar VÍS 2008

Lið BLEND


Eyjólfur Þorsteinsson

Fæddur 2. Júlí 1983. Er í sambandi með Kötlu Gísladóttur.
Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?
Já, ég og Katla erum saman í þessu
Við hvað starfar þú?
Tamningamaður og reiðkennari
Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?
Eitill frá Vindási, hann var skólahesturinn minn a hólum a 3. ári. Hefur kennt mér mikið í gegnum tíðina.
Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?
Eitill frá Vindási, Komma frá Bjarnanesi, Funi frá Vindási.
Persónuleg markmið fyrir deildina?
Gera betur en í fyrra
Lífsmottó?
Halda áfram að bæta mig sem hestamaður
_______________________________________________________________________________________


Hulda Gústafsdóttir

Fædd á Þingeyri 5. mars 1966, gift Hinriki Bragasyni, 2 börn, Edda Hrund f. 1992 og Gústaf Ásgeir f 1996.

Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

Ójá, öllsömul af lífi og sál.

Við hvað starfar þú?

Hestamennsku í víðum skilningi; ræktun, kaup og sölu, reiðkennslu, þjálfun, keppni og allt sem þessu fylgir, þar með talið bókhald og utanumhald heimasíðu.

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Hmm, erfið spurning, held upp á þá alla og get engan veginn gert upp á milli þeirra Tóns, Galdurs, Völsungs eða hennar Sögu minnar. Þetta eru allt áreiðanleg keppnishross sem eru í sífelldri sókn.

Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?

Fyrrgreindir gæðingar, Tónn frá Hala, Galdur frá Flagbjarnarholti, Völsungur frá Reykjavík, Saga frá Lynghaga og kannski einhverjir fleiri gæðingar.

Persónuleg markmið fyrir deildina?

Að jafna eða bæta árangur fyrra árs (5. sæti) og að liðið mitt vinni liðakeppnina (Blend).

Lífsmottó?

Að hafa gaman af lífinu, taka sjálfan sig passlega alvarlega og vera umburðarlyndur gagnvart náunganum.

Annað?

Ég hlakka til að taka þátt í Meistaradeildinni og finnst þetta frábær viðbót við keppnisflóruna. Hún kemur með nýjar víddir og aðra hugsun í keppnismennskuna og heldur manni svo sannarlega á tánum á meðan á henni stendur og það er hverjum í þessu fagi hollt, held ég.

_____________________________________________________________________________________________________



Jón Ó. Guðmundsson

Fæddur 2. Júlí 1983. Er í sambandi með Kötlu Gísladóttur.
Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?
Já, ég og Katla erum saman í þessu
Við hvað starfar þú?
Tamningamaður og reiðkennari
Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?
Eitill frá Vindási, hann var skólahesturinn minn a hólum a 3. ári. Hefur kennt mér mikið í gegnum tíðina.
Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?
Eitill frá Vindási, Komma frá Bjarnanesi, Funi frá Vindási.
Persónuleg markmið fyrir deildina?
Gera betur en í fyrra
Lífsmottó?
Halda áfram að bæta mig sem hestamaður
 
________________________________________________________________________________________


Sigurður V. Matthíasson

Ég er fæddur 17 júlí 1976 og er í sambúð með Eddu Rún Ragnarsdóttur.  Við eigum saman Matthías sem er 11 mánaða og svo er það fóstursonur minn Bjarki Ragnar sem er 9 ára.

Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?
Ég vinn með konunni minni í hesthúsinu og svo er öll stórfjölskylda mín á bóla kafi í hestamennsku.  Það stendur öll fjölskyldan þétt saman í þessu frábæra sporti.

Við hvað starfar þú?
Ég starfa sem tamningamaður, þjálfari og reiðkennari.

Á sumrin kenni ég í Reiðskóla Reykjavíkur sem ég rek.

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Það er margir hestar sem koma upp í hugann þegar maður lítur tilbaka.  Það eru þó nokkrir sem eiga fastan sess í huga mér, en það eru t.d Dagfari frá Sogni leirljós náttfarasonur sem kenndi mér að ríða til skeiðs kornungum.  Venus frá Skarði er eftirminnileg hryssa hvort sem notuð var í fimmgang, töltkeppni eða á kynbótabrautinni . Huginn frá Kjartansstöðum og Fálki frá Sauðárkróki en ég var heimsmeistari á þeim báðum og þeir eru mjög miklir karakterar.

Ég verð svo að nefna stórgæðinginn Kjark frá Egilsstöðum en hann er með einstakt rými og mýkt svo og geðslag. Glaður frá Sigríðarstöðum var magnaður 250m skeiðhestur sem ég lærði mikið af.

Væntanlegir keppnishestar sem verða notaðir í meistaradeildina 2008:
Ég mæti ef allt er eins og það á að vera á gæðingnum Birtingi frá Selá í

fimmgang og Gæðingaskeið.  Jafnvel í 100m líka en hann var að stimpla sig vel þar inn í sumar.

Í tölt 2 fer ég með einn besta slaktaumahest landsins enn það er vinkona mín hún Maríanna Gunnarsdóttir sem ætlar að lána mér hestinn sinn, Hyl frá Stóra- Hofi.

Ég fer með Dyn frá Kjarnholtum í 150m skeið enn hann gríðalega efnilegur skeiðhestur sem kom sterkur inn í fyrra sumar.

Persónuleg markmið fyrir deildina:
Marmið mín eru einföld þetta árið. Ég ætla að undirbúa mig vel fyrir keppnina og vinna meistaradeildina með stæl!!!

Lífsmottó:
Lífsmottó er að reyna að standa mig í því sem ég tek mér fyrir höndum.

________________________________________________________________________________________


LIÐ FRUMHERJA


Árni Björn Pálsson

Fæddur 11 nóvember 1982.  Ég á kærustu sem heitir Sylvía Sigurbjörnsdóttir.

Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

Já, fjölskyldan mín hefur áhuga á útreiðum og hestamennsku. Svo erum við Sylvía samheldin í þessu hestabrasi.

Við hvað starfar þú?

Atvinnutamningarmaður.

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Blökk frá Teigi sem er frábær klárhryssa. Fyrsta alvöru hrossið sem ég tamdi sjálfur, sýndi og keppti á.

Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?

Er ennþá að velta því fyrir mér en er þó ákveðinn í að mæta með Vöku frá Kirkjubæ (undan Rauðhettu frá Kirkjubæ og Dyn frá Hvammi) í töltið og Boða frá Breiðabólsstað í fimmgang.

Persónuleg markmið fyrir deildina?

Láta hendur standa fram úr ermum.

Lífsmottó?

Vertu þú sjálfur, gerðu það sem þú vilt.

Annað?

Sígandi lukka er oftast best, því ef á að gera  betur en vel getur farið verr en illa.

________________________________________________________________________________________


Daníel Ingi Smárason

Fæddur 30.10.1982. Er í sambúð. Unnusta mín er Berglind Rósa Guðmundsdóttir.

Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

Já, öll fjölskyldan er á kafi í hestunum.

Við hvað starfar þú?

Ég starfa hjá Orkuveitu Reykjavíkur sem tækniteiknari.

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Það er erfitt að gera upp á milli þeirra, Óðinn frá Efstadal stendur upp úr. Þetta er ævintýralega fljótur hestur og mikill karakter. Svo verð ég að nefna höfðingjann Seið frá Sigmundarstöðum sem ég hef keppt mest á, frábær rýmis hestur sem er enn í dag að gera það gott.

Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?

Máni frá Fremri-Hvestu, Gammur frá Svignaskarði, Þjótandi frá Svignaskarði, Þytur frá Syðra-Fjalli og Óðinn frá Efstadal

Persónuleg markmið fyrir deildina?

Reyna að ná sem flestum stigum

Lífsmottó?

Ég á mér eiginlega ekkert lífsmottó en ég hugsa oft þegar ég nenni ekki að gera eitthvað. Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær.

________________________________________________________________________________________


Svanhvít Kristjánsdóttir

Fædd í Reykjavík 30. okt 1965, gift Einari Öder Magnússyni.  Við eigum fjögur börn; Hildi Öder 16 ár og þríburana Dagmar Öder, Magnús Öder og Hákon Öder 10 ára.
Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

Já, en hver á sínum forsendum

Við hvað starfar þú?   
Ég rek fyrirtækið Góðhestar ehf með eiginmanni mínum þar sem við stundum hrossarækt, tamningu, þjálfun, sölu og reiðkennslu

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Sif frá Hávarðarkoti, einstakt skeiðhross bæði fljót og óvenju teknisk. Faldur frá Syðri-Gróf, ákaflega viljugur og rúmur. Núna er ég með Kaldalóns frá Köldukinn og erum við að ná vel saman.  Annars er erfitt að gera upp á milli þeirra, allt eru þetta mjög góðir hestar

Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?

Kaldalóns Frá Köldukinn, Dama frá Flugumýri, Örvar-Oddur frá Ketilstöðum, Kjarkur frá Ingólfshvoli, Líf frá Halakoti o.fl.

Persónuleg markmið fyrir deildina? 

Vinna fjórganginn, leggja mig alla fram og leiða lið Frumherja til sigurs í liðakeppninni. Ég er með unga og metnaðarfulla krakka sem munu leggja sig alla fram og það verður gott að vera ein af krökkunum

Lífsmottó? 

Að lifa lífinu lifandi og njóta augnabliksins.

Annað? 

Ég vil sjá smá breytingar á smalanum. Gera  hana meira að vinnu keppni svo sem opna hlið, teygja sig eftir hlut sem liggur á jörðinni ofl.

________________________________________________________________________________________


Þórdís Erla Gunnarsdóttir

Fædd 28 júni 1983 og er í sambúð

Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

Já fjölskyldan starfar öll meira og minna við greinina.

Við hvað starfar þú?

Tamningamaður/kona

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Kjarnorka frá Auðsholtsjáleigu, Ösp frá Enni og bræðurnir Goði og Glaumur frá Auðsholtshjáleigu, allt hross sem ég hef fylgst með frá þau voru tryppi og folöld, hafa viljann, geðslagið, getuna og ég lærði mikið af þeim. Verð samt líka að nefna Skell frá Hrafnkelsstöðum án efa sá hestur sem hefur kennt mér hvað mest, mikið skap og karakter, svona eins manns hestur.

Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?

Það verður eiginlega bara að koma í ljós, þau eru flest frekar ung þannig þetta skýrist þegar nær dregur.

Persónuleg markmið fyrir deildina?

Fyrst og fremst að læra meira, bæta mig sem knapa og leggja inn á reynslubankann. Þar fyrir utan að láta finna fyrir sér og standa sig vel.

Lífsmottó?

Aldrei að gefast upp.

Annað?

Megi sá besti eða besta vinna!

________________________________________________________________________________________


Lið IB EHF


Haukur Baldvinsson

Fæddur: 20.okt. 1977.  Giftur Ragnhildi Loftsdóttur og saman eigum við soninn Dag Orra sem er rúmlega 2 ára.

Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

Fjölskyldan tekur fullan þátt í hestamennskunni, það má segja að við Ragga séum eiginlega á bólakafi í þessu öllu saman og svo kemur sonurinn sterkur inn.  það er allavega klárt að ég gæti ekki tekið þátt í Meistardeildinni ef að ég nyti ekki stuðnings og aðstoðar frá minni eðalkonu.

Við hvað starfar þú?   
Ég starfa sem framkvæmdastjóri og bílasali í Toyota umboðinu á Selfossi.

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Minn uppáhalds keppnishestur er án efa Falur frá Þingeyrum, hann hefur kennt mér gríðarlega mikið, hann er mikill karakter, eðal gæðingur og ekki spillir nú fyrir að hann er flugvakur.

Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?

Falur verður minn aðal hestur á komandi tímabili, verð með hest sem heitir Glitnir frá Selfossi í 4 gang og tölti, Vorboða frá Höfða í skeiðgreinum og einhverja fleiri gæðinga.

Persónuleg markmið fyrir deildina? 

Mín persónulegu markmið fyrir deildina; Gera mitt allra besta hverju sinni, vera í topp tíu í lok deildarinnar, hala inn einhver ósköp af stigum fyrir liðið og síðast en ekki síðst hafa gagn og gaman af deildinni.

Lífsmottó? 

Lifa lífinu lifandi.

________________________________________________________________________________________


Ísleifur Jónasson

Fæddur 12 maí 1975, sambýliskona Ingileif Guðjónsdóttir,  tvær dætur Vilborg María 8 ára frá  fyrra sambandi og Sigrún 7 mánaða. 

Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

Já, hver á sinn hátt.

Við hvað starfar þú?

Bóndi og tamningamaður.

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Röðull, næg orka og rými sem þarf að beina í réttan farveg.

Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?

Röðull frá Kálfholti, Svalur frá Blönduhlíð, Dögunn frá Bakka og svo að ógleymdum Bjarka frá Sunnuhvoli.

Persónuleg markmið fyrir deildina?

Vinna smalann, annars óvíst að ég fái að fara á fjall næsta haust.

Persónuleg markmið fyrir deildina?

Gera betur í dag enn í gær.

Lífsmottó?

Fæst orð bera minnsta ábyrgð.

________________________________________________________________________________________


Jón Gíslason

Fæddur 1. mars 1977 og á tvo unga stráka. Er á lausu!

Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

Við hvað starfar þú?

Tamningamaður

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Stimpill frá Kálfhóli sem töltari því hann hefur mikinn eðlis fótaburð og er líka geysilega rúmur. Búri frá Feti sem fjórgangari því hann hefur allar gangtegundir góðar og hefur einstakt geðslag.

Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?

Stimpill frá Kálfhóli í töltið, Dalla frá Reykjavík í fimmganginn og svo luma ég á leynivopnum í hinar greinarnar.

Persónuleg markmið fyrir deildina?

Reyna að gera sitt besta.

Lífsmottó?

Gera betur í dag en í gær.

________________________________________________________________________________________


Viðar Ingólfsson

Fæddur: 30. maí 1983.  Í sambúð með Jónu Margréti Ragnarsdóttir.

Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

Já, meiri hluti fjölskyldunnar er viðloðandi hestamennsku.

Við hvað starfar þú?   
Ég er tamningamaður að Kvíarhóli í Ölfusi.

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Tumi, Taktur og Riddari eru mínir uppáhalds hestar.  Líklega er ástæðan sú að þetta eru þeir hestar sem ég hef náð mestum árangri með.  Allt gæðingar, hver með sínu sniði og erfitt að gera upp á milli þeirra. 

Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?

Tumi frá Stóra-Hofi, Riddari frá Krossi, Hreimur frá Barkarstöðum, Gammur frá Skíðbakka og aldrei að vita nema maður tefli fram fleiri vopnum.

Persónuleg markmið fyrir deildina? 

Það getur nú ekki verið nema eitt markmið, að verja dolluna!

Lífsmottó? 

... er fyrir þá sem fara ekki eftir því.

________________________________________________________________________________________


Lið Málningar EHF


Atli Guðmundsson

Ég er fæddur 6 mars 1965.  Unnusta mín heitur heitir Brynja Þorgeirsdóttir og á ég þrjú börn,  Jóhannes 12 ára, Shiri 4 ára og Guðmund, eins og hálfs.
Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

Unnustan tekur þátt í hestamennskunni með mér og elsti strákurinn örlítið

Við hvað starfar þú?
Reiðkennari og tamningamaður.

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Ormur frá Dallandi, hann var einfaldlega betri en allir hinir.

Væntanlegir keppnishestar sem verða notaðir í meistaradeildina 2008:
Það er of snemmt að segja til um það.  Sprettur og Snúður verða í skeiðið en enn er verið að skoða hesta í hinar greinarnar.

Persónuleg markmið fyrir deildina:
Að gera betur en í fyrra allavega

Lífsmottó:
Njóta hverrar stundar.

________________________________________________________________________________________


Sævar Örn Sigurvinsson

Ég er fæddur 3 febrúar 1971.  Ég er í sambúð með Louise Aitken og við eigum saman dóttirina Svandísi sem er þriggja mánaða gömul.
Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

Fjölskyldan tekur að sjálfsögðu þátt í hestamennskunni með mér, Lou fer á bak eins og tíminn leyfir í vetur, en hún er í fæðingarorlofi sem stendur.
Við hvað starfar þú?
Ég starfa við tamningar í tamningarstöðinni í Arabæ sem ég rek með vinum mínum þeim Hallgrími Birkissyni og Sonju Arnarsdóttur.
Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Þota frá Efra-Seli, hún er með einstakt geðslag og mikla mýkt og er mjög þjál en samt viljug. Svo er það Leynir frá Erpsstöðum, hann er með magnaðar gangtegundir og alltaf hægt að stóla á hann inn á velli, einnig Kostur frá Böðmóðsstöðum hann er með góðar gangtegundir og mikið rými.
Væntanlegir keppnishestar sem verða notaðir í meistaradeildina 2008:
Þota frá Efra-Seli, Kostur frá Böðmóðsstöðum það á hins vegar eftir að skýrast hvað ég mæti með í fimmganginn.
Persónuleg markmið fyrir deildina:
Gera
  betur enn í fyrra, helst að vinna að sjálfsögðu.
Lífsmottó:
Að vera kátur og standa sig í lífsbaráttunni.

________________________________________________________________________________________


Valdimar Bergstað

Fæddur 19.12.89. Bý í foreldrahúsum og er á lausu :-)

Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

JÁ, og án hennar gæti ég þetta ekki !!!!!

Við hvað starfar þú?

Er í skóla (Fjölbraut í Breiðholti)

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Leiknir frá Vakurstöðum og Sólon frá Sauðakróki (Blesi minn).  Leiknir er fæddur ömmu og afa og Blesi er fyrsti keppnishesturinn minn sem amma lánaði mér til að keppa á og var ég þá aðeins 7 ára. Þetta eru báðir frábærir og vinnuglaðir hestar, báðir mjög orkumiklir og góðir vinir mínir sem hafa kennt mér margt.

Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?

Leiknir frá Vakurstöðum, Sólon frá Sauðakróki, Órion frá Lækjarbotnum,

Glymur frá Sauðakróki, Glaumur frá Torfufelli, Snjall frá Gili.

Persónuleg markmið fyrir deildina?

Stefnir maður ekki alltaf á sigur :-).

Lífsmottó?

I Wanna go fast :-) Að standa mig vel í einu og öllu og vera sjálfum mér og fjölskyldu minni til sóma.

Annað?

Bestu þakkir fyrir mig.

________________________________________________________________________________________


Þorvaldur Árni Þorvaldsson

Fæddur 21.ágúst 1975.  Í sambúð með Sissel Tveten.

Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?
Já, stór hluti fjölskyldunnar stundar hestamennsku.

Við hvað starfar þú?

Tamningamaður og reiðkennari að Hvoli í Ölfusi.

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Rökkvi frá Hárlaugsstöðum. Það eru margar ástæður fyrir því, Rökkvi er öðruvísi, hann er ofboðslega viljugur og tilbúinn að gefa sig í verkefnin.  Þegar kemur að úrslitum og ég gef 100% gefur hann 110%.  Viljinn og geðslagið er einstakt.

Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?

Ég kem til með að nota m.a.  Rökkva frá Hárlaugsstöðum og Baldur frá Heinabergi, síðan kem ég með sömu hryssu og í fyrra í smalakeppnina, búin að þjálfa hana stíft fyrir þá grein.  Síðan getur vel verið að ég mæti með eitthvað nýtt sem kemur á óvart.

Persónuleg markmið fyrir deildina?

Reyna að standa mig betur í skeiðgreinunum heldur en í fyrra.

Lífsmottó?

Vera betri maður í dag en ég var í gær.

________________________________________________________________________________________


Lið Skúfslæks


Erlendur Árnason

Fæddur 29.01.1972.  Sambýliskona er Sara Pesenacker, við eigum einn son sem heitir Heimir Árni.
Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

Já, Sara temur og riður út ásamt því að vera móðir og í lögfræðinámi í fjarnámi

Við hvað starfar þú?

Hrossaræktandi, Járningarmaður, hrossasala, þjálfun og tamningar. Er einnig mikið í félagsmálum hestamanna og dæmi töluvert bæði í gæðinga- og iþrottakeppni.

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Ég hef ekki keppt það míkið að ég geti svarað þessari spurningu.

Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?

Ekkert ákveðið en ég verð örugglega ekki labbandi.

Persónuleg markmið fyrir deildina?

Markmið mitt er að verða ekki siðastur: Nei grínlaust þá ætla ég að

reyna að ná í einhver stig fyrir mitt líð og helst komast minnsta kosti í 14. sæti.

Lífsmottó?

Að reyna að gera  alltaf sitt besta og komdu svo fram við aðra eins og þú vilt að þeir komi fram við þig.

Annað?

Ég óskar öllum góðs gengis.

________________________________________________________________________________________


Jakob Sigurðsson

Fæddur 31. júlí 1975.  Einbúi og barnlaus.

Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

Það er lítið um það.

Við hvað starfar þú?

Ég er tamningamaður og reiðkennari að Steinsholti í Borgarfirði.

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Bruni frá Hafsteinsstöðum og Sæli frá Skálakoti standa uppúr.  Það er þeir hestar sem ég hef náð hvað lengst með.  Þetta eru yfirburðarhestar og miklir karakterar.

Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?

Maður veit náttúrulega ekki hvað maður endar með á keppnisdegi en líklegir hestar eru Auður frá Lundum, Fróði frá Litla-Landi og Örn frá Grímshúsum.  Vörður frá Árbæ og Músi frá Miðdal í skeiðgreinar.

Persónuleg markmið fyrir deildina?

Gera mitt besta.

Lífsmottó?

Ég hef aldrei sett mér neitt lífsmottó. 

________________________________________________________________________________________


Páll Bragi Hólmarsson

Fæddur 23. Júlí 1971. Giftur Hugrúnu Jóhannsdóttur, eigum eina dóttir sem heitir Elín Þórdís.

Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

Já þetta er okkar starf.

Við hvað starfar þú?

Þjálfun, hestasölu, kennslu og ræktun

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Ófelía frá Austurkoti og Blær frá Minni-Borg, eðlisgæðingar.

Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?

Þeir bestu hverju sinni.

Persónuleg markmið fyrir deildina?

Sigra deildina.

Lífsmottó?

Njóta lífsins.  það er bara eitt líf

Annað?

Vona að það verði sami metnaður í dómurum eins og keppendum
_____________________________________________________________________________________________________



Sigurður Sigurðarson

Fæddur 06.01.1969. Giftur Sigríði A. Þórðardóttur. 4 barna faðir.

Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

Já, af lífi og sál þó þau ríði nú ekki eins mikið út og ég.

Við hvað starfar þú?

Tamningamaður og reiðkennari.

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Það er erfitt að gera upp á milli góðra hrossa en ef ég á að nefna einhver eru það Kringla frá Kringlumýri, Silfurtoppur frá Lækjarmóti, Drífa frá Hafsteinsstöðum en þau eru öll afrekshross, hvert á sínu sviði.

Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?

Ylur frá Akranesi, Hektor frá Dalsmynni, Æsa frá Flekkudal.

Persónuleg markmið fyrir deildina?

Að gera betur en síðast! (var í 2. sæti þá :-))

Lífsmottó?

Að standa mig í því sem ég er að gera.

Annað?

Ég hlakka til að takast á við Meistaradeildina í vetur, vona að hún verði sterk og spennandi og að fólk fjölmenni til að fylgjast með.

________________________________________________________________________________________


Lið Top Reiter



Hinrik Bragason

Fæddur 10. september 1968.  Hulda Gústafsdóttir er eiginkona mín og við eigum tvö börn, Eddu Hrund f. 1992 og Gústaf Ásgeir f. 1996

Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

Já, á heimilinu eru allir á kafi í þessu.

Við hvað starfar þú?

Við meira og minna allt sem lýtur að hestamennsku.

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Ölfus-Bleikur frá Skjálg er þægur og meðfærilegur.

Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?

Lokkur frá Þorláksstöðum, Ölfus-Bleikur frá Skjálg, Hjörtur frá Holtsmúla, Ögri frá Baldurshaga og Glæsir frá Ytri-Hofdölum.

Persónuleg markmið fyrir deildina?

Vinna hana.

Lífsmottó?

Standa mig betur í dag en í gær

Annað?

Hlakka til komandi keppnistímabils í Meistaradeildinni og vona að sem flestir sjái sér fært að koma og fylgjast með og hafi gaman af.

________________________________________________________________________________________


Jóhann Jóhannesson

Fæddur 5. febrúar 1961.  Í sambúð með Elku Guðmundsdóttur og saman eigum við soninn Guðmund Óla sem verður 1. árs í mars.

Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

Konan mín tekur virkan þátt í hestamennskunni og væntanlega sonurinn þegar fram líða stundir.

Við hvað starfar þú?   
Við rekum fyrirtæki sem heitir Hestaborg ehf. sem staðsett er að Borg í Þykkvabæ.  Þar er rekin alhliða hestamiðstöð sem sinnir tamningum, þjálfun, sölu, reiðkennslu og fleiru sem viðkemur hestamennskunni.

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Vinur frá Hofsstaðaseli var frábær alhliðahestur fyrir 20 árum síðan.  Lokka frá Störtal varð heimsmeistari og þrefaldur Norðurþýskur meistari, vann tvisvar A-flokk á Skeiðmótum með hæst 8,92, hún var með einlægan og skemmtilegan keppniskarakter.  Hrönn von Godemoor fór 5 vetra í 8,91 fyrir hæfileika, þýskur meistari í fimmgang og fór í 8,97 í A-flokk.  Hrönn var spólviljugur alhliða gæðingur með mikinn fótaburð og ofsa vekurð, fór 100 metra á 7,48 sek. árið 2000, hún er einfaldlega snillingur.

Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?

Stóðhesturinn Hrannar frá Þorlákshöfn, Gutti frá Hvammi, Ákafi frá Lækjamótum og einhverjir fleiri eru í sigtinu.

Persónuleg markmið fyrir deildina? 
Vera í topp fimm og vinna liðakeppnina með TOP REITER

Lífsmottó? 

Búa til góða framtíð fyrir son minn, Guðmund Óla.

Annað?

Að vera hress og kát og hrein og bein!

________________________________________________________________________________________


Ragnar Tómasson

Fæddist 25. september árið 1992, ég bý hjá foreldrum mínum og 2 systrum.

Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

Já öll fjölskyldan er í hestamennsku og snýst allt meira og minna um hana að einhverju leiti og kemst fátt annað að. Foreldrar mínir og afi standa þétt við bakið á mér.

Við hvað starfar þú?

Er að klára grunnskóla auk þess vinn ég hluta úr degi í hesthúsinu með pabba.

Þinn uppáhalds keppnishestur og af hverju?

Móses frá Grenstanga, hann er einstakur karakter auk þess sem ég hef gaman af að þjálfa hann. Hann getur tekið miklar skapsveiflur svo maður reynir að halda honum með sér hverju sinni. Hann er sterkur og öflugur og getur hvað sem er ef hann ætlar sér það.

Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?

Þrá frá Tungu hún er 6.vetra klárhryssa sem stóð sig með prýði á síðasta keppnistímabili bæði í Tölti og fjórgang. Móses frá Grenstanga 12. vetra vekringur mikill. Fróði frá Fróni 5.vetra mjög efnilegur alhliðahestur. Auk fjölda annarra hrossa

Persónulegt markmið fyrir deildina?

Gera mitt besta og reyna vera á meðal 12 efstu knapa eftir deildina.

Lífsmottó?

Það er allt hægt ef maður ætlar sér það.

________________________________________________________________________________________


Sigurbjörn Bárðarson

Fæðingardagur: 2.febrúar 1952.  Átta í heimili, allt orðið fullorðið, nema kannski afastelpan sem er aðra hverja helgi, upprennandi hestastelpa.

Tekur fjölskyldan þátt í hestamennskunni með þér?

Já allir saman, en þó sá yngsti þó aðallega hjólfákaæfingar og veiðiskap.

Við hvað starfar þú?

Hestamennsku með stóru H, og allt sem viðkemur innan geirans sem er ansi víðþætt.

Þinn uppáhalds keppnishestur/ar og af hverju?

Oh, þeir eru nú svo margir sem hafa farið í gegnum hendurnar á manni, á mörgum árum, erfitt að nefna bara einn út úr því.

Væntanlegir hestar sem notaðir verða í Meistaradeild VÍS 2008?

Kaliber og Flosi, o.fl

Persónuleg markmið fyrir deildina?

Að ná sem bestum árangri.

Lífsmottó?

Að ná árangri við allt sem ég tek mér fyrir hendur og rækta fjölskylduna.

Annað?

Koma fram við aðra eins og ég vil að komið sé fram við mig.
_____________________________________________________________________________________________________

Viðtöl og ljósmyndir / Heimild: Handbók Meistaradeildar VÍS 2008