Það er úrslitastund fyrir margann knapann í meistaradeildinni næstkomandi fimmtudagskvöld. Þá verður skorið úr því hverjir eiga möguleika á titlinum. Í dag eiga allir keppendur fræðilan möguleika á sigri því fleiri stig eru í pottinum en efsti knapinn hefur safnað fram að þessu, þetta breytist í einni svipan á fimmtudaginn.
Hún mun einnig taka á sig skýrari mynd baráttan um að halda sæti sínu í deildinni og vera í hópi 14 efstu í lokin. Þeir knapar sem fá stig hafa sótt eða engin og treysta á skeiðið verða að standa fyrir máli sínu á fimmtudaginn. Í þeim hópi eru m.a. Jói G., Siggi Matt, Ragnar Tómasson, Valdimar Bergstað, Árni Björn og Atli Guðmundsson. Það má eflaust bæta Þórdísi við sem sterkum kandídat, ekki síst ef hún mætir með Gára í gæðingaskeiðið.
Það má gera því skóna að keppnin um meistaratitilinn sé milli sjö efstu knapanna, en tíu stig skilja að þann efsta og þann sjöunda. Staðan er þessi í dag:
1 Viðar Ingólfsson 25
2 Sigurður Sigurðarson 24
3 Eyjólfur Þorsteinsson 21
4 Þorvaldur Árni Þorvaldsson 20
5 Jakob Sigurðsson 18
6 Hulda Gústafsdóttir 15
7 Sigurbjörn Bárðarson 15
8 Hinrik Bragason 11
9 Ísleifur Jónasson 10
10 Svanhvít Kristjánsdóttir 8
11 Ragnar Tómasson 8
12 Sigurður V. Matthíasson 5,5
13 Árni Björn Pálsson 5
14 Haukur Baldvinsson 3
15 Jón Ólafur Guðmundsson 2,5
16 Valdimar Bergstað 2
17 Daníel Ingi Smárason 1
18 Páll Bragi Hólmarsson 1
19-24 Atli Guðmundsson 0
19-24 Erlendur Árnason 0
19-24 Daníel Ingi Smárason 0
19-24 Jón Gíslason 0
19-24 Sævar Örn Sigurvinsson 0
19-24 Þórdís Erla Gunnarsdóttir 0
Minnug þess að Diddi vann bæði gæðingaskeiðið og 150 m skeiðið í fyrra er raunhæft að spá því að Diddi eigi eftir að færast verulega upp töfluna á fimmtudaginn en hann er nú sjöundi, 10 stigum á eftir efsta manni. Einnig byggt á fyrri reynslu er ekki ótrúlegt að Siggi Sig haldi nokkuð í horfinu, en hann mætir eflaust með fljótasta hross heimsins, Drífu frá Hafsteinsstöðum, í aðra hvora greinina á fimmtudaginn.
Viðar Ingólfsson og Þorvaldur Árni eru vegna færni sinnar í reiðmennsku alltaf líklegir en spurningin er um hestakostinn í skeiðgreinarnar. Áður en hann er ljós er erfitt að gera sér grein fyrir möguleikum þeirra. Ekki má gleyma því að þeir eiga báðir upp í erminni góða ferilskrá í slaktaumatölti sem er grein á síðasta mótsdegi. Reyndar má segja sömu sögu um Eyjólf, allir þessir þrír munu verða sterkir í slaktaumataöltinu, en möguleiki þeirra á titli veltur engu að síður á árangri í skeiðgreinunum. Fimmtudagurinn sker úr!
Það er á brattan að sækja að titlinum fyrir Jakob og Huldu, bæði hafa þau staðið sig frábærlega vel í vetur og standa í þeim sporum að eiga möguleika á sigri í deildinni ef vel gengur á endasprettinum. En hinir gríðarlega sterku skeiðknapar, bæði fyrir ofan þau í töflunni og ekki síst neðan, munu gera þeim erfitt fyrir að sækja stig í næstu greinum. Þau eru bæði það langt á eftir efsta manni í stigatöflunni að þau verða að sækja slatta af stigum í gæðingaskeiði og 150m skeiði. Kalt mat; fimmtudagurinn sker úr!
Gæðingaskeiðið verður með hefðbundnu sniði, tveir sprettir og samanlagður árangur ræður úrslitum. Til að tryggja stig í greininni má gera ráð fyrir að báðir sprettir verði að vera nánast fullkomnir.
150 m. skeiðið verður þannig að fyrst fer fram ein umferð í undanrásum. Spretturinn í undanrásunum verður að takast því einungis 10 fljótustu í undanrásarspretti eiga möguleika á sigri. Tveir fljótustu í undanrásarspretti fara beint í úrslitasprettinn. Hinir átta þar á eftir keppa í milliriðli sem ræður röð frá fimmta sæti til 10 sætis. Tveir fljótustu úr milliriðli bætast við í úrslitasprettinn. Þannig ríða fjórir knapar úrslitasprettinn.
Það má með vissu segja að knapar munu leggja allt undir á fimmtudaginn því ekki er hægt að reikna með að hægt sé að laga stöðuna mikið á lokamótinu.
Það er frítt inn á skeiðmót Meistaradeildar VÍS, það er mikil spenna í loftinu og það vita allir að frábær tilþrif munu sjást. Það er því engin, ekki ein, ástæða fyrir hestamenn að láta þetta stutta og snarpa mót á Fáksvellinum framhjá sér fara.







