| 22.1.2010 13:00 Varaknapar kynntir til leiks Meistaradeild Vís ![]() Nú hafa öll lið í Meistaradeild VÍS skilað inn tilnefningum um varaknapa og hafa þær verið teknar fyrir á stjórnarfundi deildarinnar. Eftirfarandi knapar hafa verið samþykktir sem varaknapar fyrir keppnistímabilið 2010: Lesa meira... |
| 8.7.2009 22:10 Úrslit í 150m skeiði á Skeiðleikum ![]() Það var Sigurður Sigurðarson á Spá frá Skíðbakka 1 á tímanum 15,04 sem sigraði 150m skeið á Skeiðleikum Skeiðfélagsins í kvöld. Árni Björn Pálsson á Korku frá Steinnesi var í öðru sæti á tímanum 15,44 og þriðji varð Bjarni Bjarnason á Hrund frá Þóroddsstöðum á tímanum 15,51.Meðfylgjandi eru niðurstöður í 150m skeiði. Lesa meira... |
| 4.5.2009 20:35 Fljúgandi skeið í MDV 09 á Vef Sjónvarpi Hestafrétta ![]() Upptökur frá forkeppni og úrslitum í fljúgandi skeiði í Meistaradeild VÍS 2009 eru komnar inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Einnig eru viðtöl við Sigurbjörn Bárðason og Sigurð Sigurðarson í sömu upptöku og úrslitasprettirnir. Lesa meira... |
| 1.5.2009 19:19 A úrslit í tölti MDV 09 ![]() Upptaka frá A úrslitum í tölti í Meistaradeild VÍS 2009 sem haldin var í Ölfushöll í gærkveldi er komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Lesa meira... |
| 1.5.2009 18:36 B úrslit í tölti MDV 09 ![]() Upptaka frá B úrslitum í tölti í Meistaradeild VÍS 2009 sem haldin var í Ölfushöll í gærkveldi er komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Lesa meira... |
| 1.5.2009 17:55 Forkeppni í tölti MDV 09 ![]() Upptaka frá forkeppni í tölti í Meistaradeild VÍS 2009 sem haldin var í Ölfushöll í gærkveldi er komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Aðrar upptökur frá kvöldinu eru í vinnslu og verða birtar um leið og þær eru klárar. Lesa meira... |
| 1.5.2009 16:39 Myndir frá lokakvöldi MD Vís ![]() Um 330 myndir frá lokakvöldi Meistaradeildar Vís eru komnar inná myndasafn Hestafrétta. Eins og flestum er kunnugt var æsi spennandi töltkeppni í gærkvöldi. Lesa meira... |
| 1.5.2009 11:09 Heildarúrslit kvöldsins Meistaradeild Vís ![]() Þá er síðasta móti Meistaradeildar VÍS lokið og má með sanni segja að spennan hafi verið í hámarki. Það var Sigurbjörn Bárðarson, Lífland, sem bar sigur úr býtum í einstaklingskeppninni eftir alveg hreint frábæran árangur í kvöld. Sigraði töltið og endaði annar í fljúgandi skeiði. Sigurbjörn er því meistari Meistaradeildar VÍS 2009. Lesa meira... |
| 30.4.2009 23:21 Sigurbjörn meistari 2009 Meistaradeild Vís ![]() Já, það má með sanni segja að spennan hafi verið nær óbærileg á köflum í kvöld. Töltið var virkilega spennandi, þar sem Halldór og Nátthrafn frá Dallandi voru langefstir eftir hæga töltið og hraðabreytingarnar. En eftir yfirferðar töltið náðu Sigurbjörn og Grunur að skjótast upp í fyrsta sæti. Í þriðja sæti var hinn ungi Hnokki frá Fellskoti og Hinrik Bragason, þeir áttu frábæra sýningu og hlutu meðal annars níur fyrir yfirferðar tölt. Lesa meira... |
| 30.4.2009 13:19 Veisla í kvöld Meistaradeildar VÍS ![]() Í kvöld klukkan 18:30 hefst lokamót Meistaradeildar VÍS. Keppt verður í tölti og fljúgandi skeiði. Mótið hefst á forkeppni í tölti og má gera ráð fyrir mikilli veislu þar því þar munu mætast margir af sterkustu tölturum landsins og er orð manna að sjaldan hafi jafn margir sterkir hestar verið skráðir til leiks í töltkeppni á sama tíma. Lesa meira... |
| 29.4.2009 09:38 Ráslistar í tölti og fljúgandi skeiði Meistaradeild Vís ![]() Nú hafa allir knaparnir skilað inn upplýsingum um þau hross sem þeir munu mæta með á morgun fimmtudag þegar keppt verður í tölti og fljúgandi skeiði í Meistaradeild VÍS. Keppni hefst eins og áður hefur komið fram á forkeppni í tölti klukkan 18:30. Forsala aðgöngumiða er í fullum gangi í verslunum Líflands, Top Reiter og Baldvini og Þorvaldi.
Lesa meira... |
| 28.4.2009 17:13 Meistaradeild VÍS - Forsala aðgöngumiða og dagskrá ![]() Forsala aðgöngumiða er hafin fyrir lokamót Meistaradeildar VÍS n.k. fimmtudag. Forsalan fer fram í hestavöruverslununum Baldvini og Þorvaldi á Selfossi, Líflandi í Reykjavík og Top Reiter í Reykjavík. Húsið tekur um 550 manns, en vegna ársmiða verða einungis 350 miðar seldir. Því er um að gera að tryggja sér aðgöngumiða í tíma því gera má ráð fyrir að það verði uppselt á þetta mót eins og var með fjórgangs- og fimmgangsmótin. Verð á aðgöngumiðanum er 1.500 krónur fyrir 13 ára og eldri og 500 krónur fyrir 12 ára og yngri. Lesa meira... |
| 28.4.2009 10:26 Tölt og fljúgandi skeið Meistaradeild Vís Enn eiga nokkrir knapar eftir að skila upplýsingum um hvaða hross þeir munu mæta með n.k. fimmtudag á lokamót Meistaradeildar VÍS þegar keppt verður í tölti og fljúgandi skeiði. Lesa meira... |
| 27.4.2009 11:13 Allt opið enn Meistaradeild Vís ![]() Nú þegar eitt mót er eftir í deildinni er gaman að skoða hverjir eiga enn möguleika á sigri. Það verður keppt í tveimur greinum á næsta móti því eru 24 stig í pottinum fyrir sigur og allt getur gerst. Lesa meira... |
| 26.4.2009 14:31 Stóðhestakynning Meistaradeildar ![]() Það var mikil stóðhestaveisla sem haldin var sumardaginn fyrsta í Ármóti en hún var haldin í tengslum við Meistaradeild VÍS. Margir stórglæsilegir stóðhestar voru sýndir og nú er upptaka af þeim öllum komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Lesa meira... |
| 25.4.2009 10:39 Viðtal við Didda Bárðar ![]() Sigurbjörn Bárðarson er einn besti keppnismaður í hestaíþróttum fyrr og síðar. Honum hefur þó ekki gengið sem skildi í Meistaradeildinni í ár og var hann tekin tali eftir keppni í 150m skeiði og gæðingaskeiði í Meistaradeildinni sem haldin var síðastliðin fimmtudag. Lesa meira... |
| 25.4.2009 07:20 Viðtöl við knapa Meistaradeildar ![]() Keppni í 150m skeiði og gæðingaskeiði í Meistaradeild VÍS var haldin á sumardaginn fyrsta í Ármóti. Fjölnir Þorgeirsson settist niður með nokkrum knöpum deildarinnar eftir keppni á grillbarnum í Ármóti og tók þá tali. Lesa meira... |
| 24.4.2009 18:20 Gæðingaskeið í MDV 09 ![]() Upptaka frá Gæðingaskeiði sem fram fór í Meistaradeild VÍS 2009 er komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Að þessu sinni var keppni í 150m skeiði og gæðingaskeiði haldin í Ármóti. Lesa meira... |
| 24.4.2009 14:29 Úrslit í 150m skeiði í MDV ![]() Upptaka frá úrslitum í 150m skeiði sem fram fór í Meistaradeild VÍS er komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Að þessu sinni var keppni í 150m skeiði og gæðingaskeiði haldin í Ármóti. Lesa meira... |
| 24.4.2009 13:46 Forkeppni í 150m skeiði í MDV 09 ![]() Upptaka frá forkeppni í 150m skeiði sem fram fór í Meistaradeild VÍS er komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Að þessu sinni var keppni í 150m skeiði og gæðingaskeiði haldin í Ármóti. Lesa meira... |
| 23.4.2009 22:40 Úrslit í 150 m og gæðingaskeiði Meistaradeild Vís ![]() Þá er keppni lokið á næst síðasta móti Meistaradeildar VÍS. Keppnin fór fram í dag að Ármóti samhliða stóðhestakynningu. Hópur af fólki lagði leið sína að Ármóti og má ætla að þegar mest var hafi verið um 1.000 manns á svæðinu. Lesa meira... |
| 22.4.2009 13:52 Frábær veðurspá fyrir skeiðmót og stóðhestakynningu Meistaradeildar VÍS ![]() Frábær veðurspá fyrir skeiðmót og stóðhestakynningu Meistaradeildar VÍS. Samkvæmt veðurspá núna kl. 12 á hádegi stefnir í frábært veður á morgun á Ármóti á Rangárvöllum hvar skeiðmót og stóðhestakynnig Meistaradeildar VÍS fer fram milli 16 og 20.Kl. 18:00 er spáð léttskýuðu, 8 stiga hita og hægum andvara (3 m/sek). Þetta eru mikil umskipti í veðurspánni og veit á gott.
Lesa meira... |
| 22.4.2009 13:34 Ráslistar skeiðgreinar - Fleiri stóðhestar Meistaradeild Vís ![]() Nú hafa allir knapar skilað inn upplýsingum um hvaða hross þeir munu mæta með á morgun. Þegar keppt verður í gæðingaskeiði og 150m skeiði í Meistaradeild VíS. Mótið verður haldið að Ármóti og hefst keppni klukkan 16:00. Lesa meira... |
| 21.4.2009 14:08 Stóðhestaveisla - dagskrá mótsins Meistaradeild Vís Það verður sannkölluð stóðhestaveisla á Ármóti n.k. fimmtudag á næsta móti Meistaradeildar VÍS. Lesa meira...Búið er að birta nöfn á 5 stóðhestum og nú kynnum við fleiri til leiks en þ.e. |
| 18.4.2009 22:20 Stóðhestaveisla - Skeiðgreinar - Meistaradeild VÍS ![]() Á sumardaginn fyrsta verður blásið til veislu í Ármóti. Þá verður keppt í 150m skeiði og gæðingaskeiði í Meistaradeild VÍS en jafnframt verður boðið upp á stóðhestaveislu. Happdrættið verður enn veglegra en áður og nú verða prentaðir 500 miðar og kostar happdrættismiðinn 2.000 krónur. Dregnir verða út 10 miðar og fær hver miðaeigandi að draga úr folatollum undir þá stóðhesta sem verða kynntir. Lesa meira... |
| 15.4.2009 19:04 Stóðhestaveisla - Meistaradeild VÍS ![]() Á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl, verður keppt í 150m skeiði og gæðingaskeiði í Meistaradeild VÍS. Að þessu sinni fer keppni fram í Ármóti. Samhliða mótinu verður stóðhestakynning. Á stóðhestakynningunni verða sýndir 10 hátt dæmdir stóðhestar og 10 yngri ósýndir stóðhestar. Lesa meira... |
| 4.4.2009 14:43 Viðtal við Sigurð V. Matthíasson ![]() Eins og flestir vita þá fékk Sigurður V. Matthíasson rautt spjald í keppni í fimmgangi í Meistaradeild VÍS sem haldin var í Ölfushöll síðastliðið fimmtudagskvöld. Dómara vísuðu Sigurði úr keppni þar sem þeir töldu hann ekki hafa hneigt sig í byrjun sýningar. Sigurður var að vonum mjög svekktur og náði Fjölnir tali af honum eftir að dómarar höfðu vikið honum úr keppni. Lesa meira... |
| 3.4.2009 22:23 Upptaka af A úrslitum í fimmgangi í MDV 09 Hættir Sigurður V. í Meistaradeildinni? ![]() Upptaka af A úrslitum frá keppni í fimmgangi í Meistaradeild VÍS er nú komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Sigurður V. Matthíasson fékk sérlega útreið frá dómurum deildarinnar sem endaði með því að hann fékk rautt spjald og var vikið úr keppni. Mjög svo áhugavert einkaviðtal við Sigurð verður tilbúið til sýningar á hér á Hestafréttum innan skamms. Lesa meira... |
| 3.4.2009 10:37 Heildarúrslit í fimmgangi Meistaradeild Vís Eins og flestir vita þá sigraði Eyjólfur Þorsteinsson B-úrslitin og loks A-úrslitin á Ögra frá Baldurshaga. Halldór Guðjónsson og Sigurður Vignir Matthíasson fengu ógilda sýninga þar sem þeir gleymdu báðir að hneigja sig í upphafi sýningarinnar, mikil vonbrigði fyrir þá þar sem þeir voru báðir með mjög sterka hesta. Bylgja Gauksdóttir var efst inn í B-úrslit en þegar hún var að sýna stökk á hinni ungu og efnilegu Sögn frá Auðsholtshjáleigu, steig hryssan á skeifuna og flaug á hausinn með þeim afleiðingum að Bylgja féll af baki og sýningunni hjá þeim stöllum þar með lokið. Lesa meira... |
| 2.4.2009 23:44 Eyjólfur sigraði í þriðja sinn í MD Vís 2009 Fimmgangur - Meistaradeild Vís ![]() Það var mögnuð spenna á Meistaradeild Vís í kvöld. Sætaröðunin breyttist eftir hverja gangtegund í A-úrslitunum, spennan var ólýsanleg. En sá sem kom sá og sigraði í kvöld var enginn annar en Eyjólfur Þorsteinsson, hann sigraði B-úrslitin með einkunnina 6.95 og sigraði að lokum A-úrslitin með hvorki meira né minna en 7.10. Eyjólfur Þorsteinsson er ennþá efstur með 40 stig eða ellefu stigum hærri en næsti knapi. Lesa meira... |
| 2.4.2009 17:04 Innrás / Útrás Meistaradeildar VÍS Eins og fyrr ná þeir sem eiga ekki heimangengt eða eru staddir erlendis að fylgjast með keppni í Meistaradeild VÍS í beinni á netinu. Beina útsendingin á netinu er samstarfsverkefni Meistaradeildar VÍS, Hestafrétta og Ben Media. Beina útsendingin hefur gefist vel og hefur verið horft á beinu útsendingarnar úr 5.000 - 7.000 tölvum á hverju móti. Lesa meira... |
| 1.4.2009 17:35 Hver vinnur fimmganginn í MDV annað kvöld? ![]() Það má búast við hörkukeppni í fimmgangi í Meistaradeild VÍS sem haldin verður annað kvöld í Ölfushöllinni 2. apríl. En það var Drottningin á Árbakka, Hulda Gústafsdóttir sem sigraði fimmganginn í Meistaradeildinni í fyrra og einnig árið 2007 á Galdri frá Flagbjarnarholti en nú mun hún tefla fram gæðingnum Glað frá Brattholti og spurning hvort hún sigri þriðja árið í röð. Lesa meira... |
| 31.3.2009 22:37 Fimmgangur - ráslistar Meistaradeild Vís ![]() Á fimmtudaginn verður keppt í fimmgangi í Meistaradeild VÍS og hefst keppni klukkan 19:30 í Ölfushöllinni. Þá er komið í ljós með hvaða hesta knaparnir mæta og þar á meðal eru reyndir hestar í greininni, sem og nýir spennandi hestar sem fá að spreyta sig. Lesa meira... |
| 31.3.2009 14:43 Forsala aðgöngumiða á fimmgangsmót Meistaradeildar VÍS
Næstkomandi fimmtudag, 2. apríl verður fimmgangsmót Meistaradeildar VÍS haldið í Ölfushöll. Uppselt var á fjórgangsmótið og því ákveðið að selja aðgöngumiða á fimmganginn í forsölu. Forsalan fer fram í hestavöruverslununum Baldvini og Þorvaldi á Selfossi, Top Rider í Reykjavík og Líflandi í Reykjavík. Húsið tekur um 550 manns, en vegna ársmiða verða einungis 350 miðar seldir. Lesa meira... |
| 31.3.2009 09:46 Meistaradeild VÍS - fimmgangur ![]() Má gera ráð fyrir að margir af sterkustu fimmgangshestum landsins muni berjast í Ölfushöllinni á fimmtudaginn en þá verður keppt í fimmgangi í Meistaradeild VÍS. Keppni hefst klukkan 19:30 að venju. Hulda Gústafsdóttir hefur sigrað undanfarin tvö ár á Galdri frá Flagbjarnarholti en gera má ráð fyrir því að aðrir knapar í deildinni muni sækja hart að því að ná titlinum af henni. Lesa meira... |
| 28.3.2009 15:19 Meistaradeild Vís - Dagskrá ![]() Hér fyrir neðan má sjá þær keppnir sem eftir eru í Meistaradeild Vís 2009. Lesa meira... |
| 27.3.2009 11:44 Tilkynning frá Meistaradeild VÍS Stjórn Meistaradeildar VÍS og knapar deildarinnar hafa komist að samkomulagi um að færa fyrirhugað mót og stóðhestakynningu af laugardeginum 18. apríl yfir á fimmtudaginn 23. apríl sem er sumardagurinn fyrsti. Lesa meira... |
| 20.3.2009 01:26 Myndir frá gæðingafimi í MDV ![]() Nú er myndsyrpa frá forkeppni í gæðingafimi og úrslitum komin inná myndasafn Hestafrétta. Í myndasafni Hestafrétta er hægt að finna myndir frá ýmsum öðrum mótum og sýningum. Lesa meira... |
| 20.3.2009 00:57 Úrslit í gæðingafimi Meistaradeild Vís Fegurð, kraftur og glæsileiki lýsa best sýningunni hjá Jakobi Sigurðssyni og Auð frá Lundum í kvöld. Þeir sigruðu með yfirburðum, enda sýningin nær hnökralaus. Þeir hlutu í aðaleinkunn 8.25. Á eftir þeim eða í 2. sæti var Valdimar Bergstað og Leiknir frá Vakursstöðum með einkunnina 7.63. Í 3. sæti var Sigurður Sigurðarson og hin mikli brokkari Suðri frá Holtsmúla með einkunnina 7.45. Lesa meira... |
| 20.3.2009 00:49 Heildarúrslit í gæðingafimi Meistaradeild Vís ![]() Þá er stórglæsilegu móti lokið, keppt var í gæðingafimi. Virkilega flottar og vel útfærðar sýningar og einbeittir knapar prýddu augu áhorfenda í kvöld. Eftirfarandi eru heildarúrslit kvöldsins. Lesa meira... |
| 19.3.2009 17:49 Gæðingafimin í kvöld Meistaradeild Vís ![]() Í kvöld verður keppt í Gæðingafimi í Meistaradeild VÍS. Mótið hefst klukkan 19:30 í Ölfushöllinni. Bein útsending á vef Hestafrétta hefst klukkan 19:15 og stendur allt til enda. Á föstudag verður síðan hægt að nálgast þætti um mótið á vef Hestafrétta og Meistaradeildar VÍS. Lesa meira... |
| 18.3.2009 17:09 Ráslisti í gæðingafimi Meistaradeild VÍS ![]() Næsta keppnisgrein í Meistaradeild VÍS er gæðingafimi. Keppnin verður næst komandi fimmtudag í Ölfushöllinni og hefst keppni klukkan 19:30. Gæðingafimin er mikil áskorun fyrir knapana. Þar eru allir þættir dæmdir sérstaklega og síðan heildarútlit sýningarinnar. Lesa meira... |
| 17.3.2009 19:37 Stórstjörnur mæta til leiks Gæðingafimi ![]() Það verða engar smá stjörnur sem munu etja kappi saman næst komandi fimmtudag í Ölfushöllinni þegar keppni í gæðingafimi í Meistaradeild VÍS fer fram. Sigurvegari gæðingafiminnar í fyrra Viðar Ingólfsson, Frumherja, mætir með Spaða frá Hafrafellstungu. Sigurður Sigurðarson, Skúfslæk, mætir með Suðra frá Holtsmúla en saman sigruðu þeir fjórganginn um daginn. Lesa meira... |
| 12.3.2009 16:23 Nýr knapi í Meistaradeild VÍS ![]() Þær breytingar urðu nú um helgina á liði Top Reiter að Páll Bragi Hólmarsson hefur hætt keppni í Meistaradeild VÍS. Í stað hans kemur inn varaknapi liðsins Guðmundur Björgvinsson. Guðmundur er flestum hestamönnum vel kunnugur en hann hefur tekið þátt í keppni og kynbótasýningum í mörg ár. Guðmundur varð Íslandsmeistari 2008 í fimmgangi opnum flokki og var hann jafnframt í A-úrslitum í bæði A- og B-flokki á s.l. Landsmóti. Lesa meira... |
| 5.3.2009 23:28 Myndir frá slaktaumatölti í MDV ![]() Nú er myndsyrpa frá forkeppni í T2 og úrslitum komin inná myndasafn Hestafrétta. Í myndasafni Hestafrétta er hægt að finna myndir frá ýmsum öðrum mótum og sýningum. Lesa meira... |
| 5.3.2009 22:28 Eyjólfur sigraði slaktaumatöltið Meistaradeild Vís ![]() Í kvöld var æsi spennandi keppni þar sem meistararnir kepptu í slaktaumatölti. Hinrik Bragason átti frábært kvöld þar sem hann reið sig uppúr b-úrslitum upp í 2.sæti í a-úrslitum með einkunnina 7.67. Eyjólfur Þorsteinsson kom sá og sigraði á Ósk frá Þingnesi með einkunnina 7.92. Eyjólfur leiðir enn stigakeppnina með 29 stig. Lesa meira... |
| 5.3.2009 15:49 Minnum á beina útsendingu frá Meistaradeild í kvöld Keppni í slaktaumatölti í Meistaradeild VÍS verður haldin í kvöld í Ölfushöll á Ingólfshvoli. Við minnum á að bein útsending hefst frá keppni kvöldsins klukkan 19.15. Einnig vekjum við athygli á að bein útsending verður frá Ís – Landsmóti sem haldið verður á Svínavatni næstkomandi Laugardag. Lesa meira... |
| 4.3.2009 23:59 MD VÍS - Happdrætti - Dugur frá Þúfu ![]() Folatollurinn sem er í vinning þegar keppt verður í slaktaumatölti í MD VÍS er tollur undir Dug frá Þúfu. Dugur er klárhestur sem vakti mikla athygli í 5. vetra flokknum á Landsmótinu í sumar þar sem hann hafnaði í fjórða sæti og hlaut 8,42 í aðaleinkunn, 8,35 fyrir byggingu og 8,46 fyrir hæfileika. Hann er með 9,5 fyrir fegurð í reið og 9,0 fyrir tölt, brokk, stökk, og vilja og geðslag. Faðir hans er Sveinn-Hervar frá Þúfu og móðirin er Dröfn frá Þúfu. Lesa meira... |
| 4.3.2009 10:16 Meistaradeild VÍS - rásröð Slaktaumatölt ![]() Eins og áður hefur komið fram þá verður þriðja mótið í Meistaradeild VÍS á morgun fimmtudaginn 5. mars. Mótið verður haldið í Ölfushöllinni og hefst keppni klukkan 19:30. Hart verður barist bæði í einstaklings og liðakeppninni. Ráslistar eru eftirfarandi: Lesa meira... |
| 4.3.2009 10:02 Meistaradeild VÍS - Slaktaumatölt Á fimmtudaginn fer fram þriðja mótið í Meistaradeild VÍS. Mótið verður haldið í Ölfushöllinni og hefst keppni klukkan 19:30. Hart verður barist bæði í einstaklings og liðakeppninni og verður gaman að sjá hver mætir með hvern. Enn hafa ekki allir knaparnir tilkynnt með hvaða hest þeir munu mæta en í hópi þeirra sem komnir eru eru nokkrir þekktir slaktaumatöltshestar ásamt upprennandi stjörnum í greininni. Ráslistar verða birtir á morgun miðvikudag. Lesa meira... |
| 3.3.2009 14:36 Veislan heldur áfram T2 á fimmtudag Bein útsending frá Meistaradeild VÍS ![]() Já, veislan heldur áfram í Meistaradeild VÍS næstkomandi fimmtudag en þá verður keppt í slaktaumatölti. Hestafréttir mun senda beint frá keppninni á netinu og mun þetta vera þriðja keppnin sem send er út beint. Keppnin hefst stundvíslega klukkan 19.30 og útsending 15 mínútum fyrr. Lesa meira... |
| 23.2.2009 13:12 Upptökur frá úrslitum í fjórgangi MDV Hér getið þið séð upptökur frá úrslitum í fjórgangi Meistaradeildar Vís. Úrslitin voru æsispennandi og var mjótt á munum lengi vel. Efstir inn í úrslit voru þeir Jakob Sigurðsson og Auður frá Lundum, í forkeppninni hlutu þeir 7,37 og voru efstir í úrslitum þegar kom að yfirferðinni, en þar var við ofurefli að etja. Það kom ekkert annað til greina nema sigur hjá Sigga Sig og Suðra frá Holtsmúla. Lesa meira... |
| 23.2.2009 13:11 Upptökur frá B-úrslitum í fjórgangi MDV 09 Upptaka frá B-úrslitum í fjórgangi Meistaradeildar Vís 2009 er nú komin inn á Vef sjónvarp Hestafrétta. Hástökkvari B-úrslitanna og mótsins var stóðhesturinn Náttar frá Þorláksstöðum með knapa sinn Hinrik Bragason, þeir félagar komu inn í 9. Sæti og bættu í við hvern hring, unnu B-úrslitin með nokkrum yfirburðum og 7,37 í einkunn. Lesa meira... |
| 23.2.2009 11:48 Umfjöllun um fjórgang MD VÍS Pistill eftir Elku Guðmundsdóttur Það má segja að fjórgangurinn í Meistaradeild VÍS síðastliðinn fimmtudag hafi verið upphaf keppnistímabilsins á árinu. Gríðarlega sterkt mót og hestakosturinn ekkert slor. Þegar hestar á borð við Röðul frá Kálfholti, Borða frá Fellskoti og Oliver frá Austurkoti komast ekki í úrslit er það vísbending um að styrkleikinn sé nokkur. Lesa meira... |
| 19.2.2009 23:25 Sigurður og Suðri sigruðu fjórganginn í MDV Sigurður Sigurðarson stóð við stóru orðin og varði titil sinn sem sigurvegari í fjórgangi í Meistaradeildinni í kvöld á Suðra frá Holtsmúla. Það var eins og fyrri daginn, þegar Suðri byrjaði fyrsta brokksporið ætlaði allt vitlaust að verða í höllinni. Í verðskulduðu öðru sæti varð Jakob Sigurðsson á stórgæðingnum Auð frá Lundum. Lesa meira... |
| 19.2.2009 10:54 Meistaradeild VÍS - fjórgangur í kvöld ![]() Mikil spenna er fyrir öðru móti Meistaradeildar VÍS sem fer fram í kvöld en þar verður keppt í fjórgangi. Margar þekktar stjörnur munu þar berjast og nýjar koma fram. Lesa meira... |
| 18.2.2009 17:21 Siggi og Suðri í fjórgang í MDV ![]() Sigurvegari fjórgangskeppninnar í fyrra Sigurður Sigurðarson sem keppir fyrir lið Skúfslækjar mætir ekki með gæðinginn Sölva frá Ingólfshvoli heldur föður hans Suðra frá Holtsmúla. "Hesturinn er í feikna formi og það var ákveðið að mæta með hann og verja titilinn" segir Sigurður Ragnarsson einn af eigendum hestsins í viðtali við Hestafréttir. Lesa meira... |
| 17.2.2009 16:33 Meistaradeild VÍS - happadrætti - folatollur ![]() Á næsta móti Meistaradeildar VÍS verður fyrsta happadrætti deildarinnar af fimm. Fyrsti folatollurinn sem dregið verður um er tollur undir Landsmótssigurvegarann Óm frá Kvistum. Ómur sigraði 5 vetra flokkinn á Landsmót eins og flestum er í fersku minni. Hann er undan Ófeigssyninum Víglundi frá Vestra-Fíflholti og Otursdótturinni Orku frá Hvammi. Hann hlaut 8,61 í aðaleinkunn á Landsmótinu. Fékk 8,24 fyrir byggingu og 8,85 fyrir hæfileika og þar af 9,5 fyrir skeið og vilja og geðslag. Lesa meira... |
| 17.2.2009 15:12 Beinar útsendingar frá Meistaradeild VÍS Beint á netinu frá keppni í fjórgangi ![]() Fyrsta beina útsendingin frá Meistaradeild VÍS var 5. febrúar síðastliðin en þá var sýnt beint frá keppni í Smala. Hér var um tilraunaútsendingu að ræða og að sjálfsögðu þurfti tæknin að hrekkja okkur í það skiptið. Útsending náðist illa fyrripart keppninnar en eftir hlé þá komst búnaðurinn í lag og allt gekk að óskum. Lesa meira... |
| 11.2.2009 14:20 Þáttur um Meistaradeild VÍS ![]() Á morgun fimmtudag verður fyrsti þátturinn um Meistaradeild VÍS sýndur á RÚV. Þátturinn er á dagskrá klukkan 18:25. Í fyrsta þættinum er sýnt frá afar spennandi keppni í smala eða hraðafimi, þar sem knapar sýndu mikil tilþrif. Lesa meira... |
| 6.2.2009 00:46 Öll úrslit kvöldsins í MDV ![]() Eyjólfur Þorsteinsson sigraði smalann í Meistaradeildinni í kvöld á Stúf frá Miðkoti. í öðru sæti varð Sigurbjörn Bárðarson á Lýsu frá Steinnesi og þriðja sæti var sigurverarinn í Smalanum frá því í fyrra, hrossa og fjárbóndinn Ísleifur Jónasson hann reið Bjarka frá Sunnuhvoli. Lesa meira... |
| 5.2.2009 22:21 Eyjólfur sigraði Smalan í kvöld í MDV ![]() Eyjólfur Þorsteinsson sigraði smalann í Meistaradeildinni í kvöld á Stúf frá Miðkoti. í öðru sæti varð Sigurbjörn Bárðarson á Lýsu frá Steinnesi og þriðja sæti var sigurverarinn í Smalanum frá því í fyrra, hrossa og fjárbóndinn Ísleifur Jónasson hann reið Bjarka frá Sunnuhvoli. Lesa meira... |
| 4.2.2009 21:43 Meistaradeild VÍS - Smali ![]() Á morgun fimmtudag fer fram fyrsta mótið í Meistaradeild VÍS 2009. Fyrsta grein mótsins er Smali og hefst keppni klukkan 19:30 í Ölfushöllinni. Enn er hægt að tryggja sér ársmiða í Líflandi, Top Reiter og Baldvini og Þorvaldi. Verðið á ársmiða er kr 5.000,- en aðgangseyrir á hvert mót er kr 1.500,- Lesa meira... |
| 28.1.2009 09:43 Ársmiðar MDV ![]() Ársmiðar Meistaradeildar VÍS sem gilda á öll mót hennar fást nú í hestavöruverslununum Top Rider, Líflandi og Baldvini og Þorvaldi. Ársmiðinn kostar kr. 5.000 og samsvarar það helmingsafslætti ef farið er á öll mót meistaradeildarinnar. Miðaverð á einstakt mót er kr. 1.500, nema á skeiðleika deildarinnar, en á þá mun kosta kr. 1.000.
Lesa meira... |
| 27.1.2009 21:58 Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum Smali ![]() Fyrsta mót Meistaqradeildar VÍS í vetur verður haldið í næstu viku, fimmtudagskvöldið 5. febrúar. Keppt verður í smala, sem einnig gengur undir nafninu hraðafimi. Í smalanum reyna keppendur að leysa ákveðin verkefni á sem skemmstum tíma. Árangur ræðst af tíma og fjölda refsistiga sem knapar fá ef óvarlega er farið.
Lesa meira... |
| 25.1.2009 17:19 Varaknapar MDV 2009 ![]() Nú hafa öll lið í Meistaradeild VÍS skilað inn tilnefningum um varaknapa og voru þær teknar fyrir á stjórnarfundi á föstudag. Eftirtaldir knapar hafa verið samþykktir sem varaknapar fyrir keppnistímabilið 2009: Lesa meira... |
| 23.1.2009 20:57 Sigursteinn Sumarliðason samþykktur inní MDV ![]() Sigursteinn Sumarliðason var samþykktur af stjórn Meistaradeildar VÍS í hestaíþróttum sem knapi í lið Frumherja í stað Svanhvítar Kristjánsdóttur sem gaf sæti sitt eftir vegna meiðsla. Sigursteinn er núverandi heimsmeistari í skeiði, ásamt því að hafa verið í 5. sæti í B-flokki gæðinga á síðasta landsmóti á Borða frá Fellskoti.
Lesa meira... |
| 22.1.2009 10:16 Sigursteinn Sumarliðason í lið Frumherja í MDV ´09 ![]() Lið Frumherja hefur nú boðið Sigursteini Sumarliðasyni að taka þátt í Meistaradeild Vís 2009 í stað Svanhvítar Kristjánsdóttur. “Já, ég er vel ríðandi, ég er með hesta á borð við Borða frá Fellskoti og Bjarkar frá Blesastöðum og fleiri góða. Þetta verður spennandi keppni.” Sagði Sigursteinn í samtali við Hestafréttir. Lesa meira... |
| 18.1.2009 18:32 Nú styttist í Meistaradeild Vís 2009 ![]() Nú styttist í fyrstu keppni MDV ´09 sem verður haldin 5. febrúar og byrjað verður á smala/hraðafimi. Viljum við minna fólk á að allar upptökur frá MDV ´08 eru inná vef sjónvarpi Hestafrétta. Lesa meira... |
| 16.1.2009 23:08 Nú hefur Lýsis liðið fundið knapa fyrir MDV 2009 ![]() Sá knapi sem varð fyrir valinu er stórknapinn Halldór Guðjónsson frá Hestamiðstöðinni Dal í Dallandi. Halldór Guðjónsson er með frábæra hesta á borð við Nátthrafn frá Dallandi sem var í 3.sæti í tölti á Landsmóti Hestamanna á Hellu 2008. Lesa meira... |
| 11.1.2009 18:27 Sigríður Pjétursdóttir verður ekki með í Meistaradeild Vís ![]() Sigríður Pjétursdóttir hefur dregið sig úr Meistaradeild Vís og er það annað árið í röð sem hún gerir það og er það mikill missir fyrir Lýsis liðið. Það verður fróðlegt að sjá hvað stjórn deildarinnar gerir nú til að fylla þetta skarð. Stjórnin var harðlega gagnrýnd eftir að hún valdi Daníel Jónsson inn í deildina eftir að Þorvaldur Árni dró sig úr henni. Lesa meira... |
| 11.9.2008 01:49 Úrslit í úrtöku Meistaradeildar VÍS 2009 Eftir úrtöku í dag eru 20 knapar öruggir keppendur í Meistaradeild VÍS 2009. 15 knapar þreyttu úrtöku og var spennan mikil fram á síðustu stundu og mátti heyra saumnál detta þegar úrslit voru tilkynnt. Meðfylgjandi eru úrslit dagsins og hópurinn sem er fullskipaður fyrir utan einn knapa. Það eru einungis fjórir mánuðir í að deildin byrji og framundan er mikill undirbúningur fyrir glæsilegustu Meistaradeild til þessa. Lesa meira... |
| 9.9.2008 18:07 Úrtaka fyrir MD VÍS - rásröð Á morgun, miðvikudag fer fram úrtaka fyrir Meistaradeild VÍS 2009. Úrtakan hefst klukkan 15.00 í Ölfushöll á Ingólfshvoli. Knapafundur er klukkan 14.30. Einungis er riðin forkeppni í hringvallagreinum. Að minnsta kosti eru 8 sæti laus í deildinni, en knapar þurfa að ná 5.80 í meðaleinkunn til að ná öruggu sæti. 15 knapar eru skráðir til leiks á morgun. Ókeypis aðgangur. Lesa meira... |
| 5.9.2008 13:34 Úrtaka fyrir Meistaradeild VÍS ![]() Úrtakan fer fram í Ölfushöll nk. miðvikudag, 10. september og hefst kl. 15:00. Hugsanlegt er að mótið hefjist fyrr ef þátttakan verður mikil. Keppt er í fjórum greinum tölti, fimmgangi, fjórgangi og skeiði í gegnum höllina (70 m. kafli). Allar greinarnar vega jafnt og ræður sætaröð. Lesa meira... |
| 4.9.2008 16:28 Meistaradeild VÍS 2009 Mun Viðar Ingólfs verja titilinn 2009? ![]() Nú er aðeins vika í úrtöku fyrir Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum fyrir keppnistímabilið 2009. Úrtakan verður haldin í Ölfushöll á Ingólfshvoli næstkomandi miðvikudag og hefst hún klukkan 15.00. Lokakeppni deildarinnar á þessu ári var gríðarlega hörð og stórskemmtileg en eins og allir vita þá sigraði meistarinn Viðar Ingólfsson deildina. Fjölskylda Viðars stækkaði í fyrradag en þá eignuðust Viðar og frú strák sem braggast vel ásamt móður og óska Hestafréttir nýbökuðum foreldrum til hamingju með nýja meistarann. Lesa meira... |
| 30.4.2008 10:48 Uppskeruhátíð Meistaradeildar VíS í kvöld ![]() Við viljum minna á uppskeruhátíð Meistaradeildar VÍS sem haldin verður á Ingólfshvoli í kvöld og opnar húsið klukkan 19.00. Uppskeruhátíðin er ætluð knöpum, starfsfólki, dómurum, styrktaraðilum og fjölmiðlafólki. Veislustjóri verður Sigurður Sæmundsson og Tómas Ragnarsson mun matreiða ofan í líðinn. Lesa meira... |
| 29.4.2008 09:06 Lokakeppni MDV komin á Vef Sjónvarp ![]() Upptökur frá lokakeppni í Meistaradeild VÍS sem haldin var síðastliðin fimmtudag í Ölfushöll á Ingólfshvoli eru komnar inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Upptökurnar skiptast í sjö hluta, ásamt hinu glæsilega Forstjóratölti. Lesa meira... |
| 25.4.2008 18:54 Meistaradeild VÍS – Viðar Ingólfsson sigurvegari, annað árið í röð Elka Guðmundsdóttir skrifar ![]() Það var mikil dramatík á Ingólfshvoli í gærkveldi þegar úrslitamót Meistaradeildar VÍS fór fram. Ljóst var fyrir kvöldið að margir knapar áttu möguleika á að ná fram sigri gengi allt upp. Þegar leið á keppni í slaktaumatölti fóru línur að skýrast og eftir öruggan sigur Viðars Ingólfssonar og Tuma frá Stóra-Hofi voru þrír sem áttu möguleika á sigri. Lesa meira... |
| 24.4.2008 23:34 Viðar Ingólfsson er meistari meistarana annað árið í röð ![]() Snillingurinn á Kvíarhóli, Viðar Ingólfsson innsiglaði sigur í lokakeppni í Meistaradeild VÍS sem haldin var í kvöld í Ölfushöllinni og því meistari meistarana annað árið í röð. Viðar átti þó sigurinn ekki auðveldlan því aðeins munaði hálfu stigi á honum og hrossabóndanum Sigga Sig sem hafnaði í öðru sæti. Kvikmyndatökumenn áttu í mestu vandræðum með að mynda Sigurð þegar hann kom á ljóshraða í gegnum höllina í skeiðinu á Drífu frá Hafsteinsstöðum. Í þriðja sæti varð Jakob Sigurðsson. Lesa meira... |
| 23.4.2008 12:59 Forsala á lokamót Meistaradeildar VÍS og dagskrá þess ![]() Forsala aðgöngumiða er í fullum gangi fyrir lokamót meistaradeildarinnar sem fram fer í Ölfushöll annað kvöld, sumardaginn fyrsta. Forsalan fer fram hjá Baldvini og Þorvaldi, Líflandi, Top Rider og Kanslaranum á Hellu. Lesa meira... |
| 23.4.2008 11:44 Uppskeruhátíð Meistaradeildar VÍS ![]() Miðvikudagskvöldið 30. apríl næstkomandi heldur meistaradeildin uppskeruhátíð. Hátíðin byrjar með borðhaldi knapa, starfsmanna, dómara og stuðningsaðila. Yfirkokkur er sjálfur yfirdómarinn Tommi Ragg. Veislustjóri verður hinn síkáti Siggi Sæm. Undir borðhaldi munu þeir Jói G. og Elli á skíðbakka fara með gamanmál. Lesa meira... |
| 23.4.2008 08:05 Lokamót Meistaradeildar VÍS Ráslistar ![]() Lokamót Meistaradeildar VÍS verður haldið í Ölfushöll á morgun fimmdudag og hefst keppni klukkan 17.00. Það er mikil spenna fyrir lokamótið og ljóst að margir knapar geta náð sigri í deildinni á lokasprettinum. Meðfylgjandi eru ráslistar mótsins. Lesa meira... |
| 21.4.2008 15:54 Úrslitamót Meistaradeildar VÍS 2008 Elka Guðmundsdóttir skrifar ![]() Næstkomandi fimmudag verða háð úrslit í Meistaradeild VÍS árið 2008. Sigurvegarinn hlýtur 600.000 króna peningaverðlaun sem gefin eru af VÍS og hnakkinn Hrímni sem gefinn er af Lífland. Að auki hlýtur sá sem endar í öðru sæti 300.000 krónur og þriðja sætið 200.000 krónur. Það eru átta keppendur sem eiga fræðilega möguleika á sigri á fimmtudaginn. Lesa meira... |
| 16.4.2008 10:08 Lokamót Meistaradeildar VÍS - forsala aðgöngumiða ![]() Nú er að styttast í lokamót Meistaradeildar VíS sem fer fram fimmtudaginn 24. Apríl næstkomandi klukkan 17.00 í Ölfushöll. Forsala aðgöngumiða verður í verslunum Líflands, Top Reiter og Baldvin og Þorvaldi á Selfossi. Einnig á veitingastaðnum Kanslaranum á Hellu. Miðaverð er sem fyrr kr. 1.500. Lesa meira... |
| 11.4.2008 17:06 MDV – Gæðingaskeið og 150m skeið á Vef Sjónvarpi ![]() Upptökur af keppni í Gæðingaskeiði og 150m skeiði í Meistaradeild VÍS sem haldin var á Fáksvelli í gær eru komnar inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Upptökurnar eru í tveimur hlutum, gæðingaskeið allir sprettir og 150m skeið í einni runu. Lesa meira... |
| 11.4.2008 10:40 Nýliðinn úr Borgarfirðinum leiðir Meistaradeild VÍS Elka Guðmundsdóttir skrifar ![]() Keppni í gæðingaskeiði og 150m skeiði var haldin í blíðskaparverði á Fáksvellinum í Reykjavík fimmtudaginn 10. Apríl. Vallarskilyrði voru reyndar með daprasta móti og hafði það töluverð áhrif á tíma í kappreiðum og mistök voru tíð í gæðingaskeiði. Sigurvegari gæðingaskeiðs var Hinrik Bragason og Flugar frá Barkarstöðum. Úrslitum voru því heldur óvænt þar sem Flugar er nýr á keppnisbrautinni. Lesa meira... |
| 10.4.2008 10:44 Lokasprettur Meistaradeildar VÍS í hestaíþróttum Dagskrá og ráslisti ![]() Seinnipartinn í dag verður háð keppni á næstsíðasta móti Meistaradeildar VÍS í hestaíþróttum undir berum himni í Reykjavík. Keppt verður í skeiði, nánar tiltekið gæðingaskeiði og 150m skeiði þar sem allt snýst um hraða og tækni á þessari krafmiklu gangtegund íslenska hestsins. Lesa meira... |
| 9.4.2008 17:12 Líklegt sigurlið Meistaradeildar VÍS Elka Guðmundsdóttir skrifar ![]() Núna þegar fjórar keppnisgreinar eru eftir í Meistaradeild VÍS er hægt að fara að spá í spilin um líklega sigurvegara í einstaklings og liðakeppni. Áður hefur verið fjallað um einstaklingskeppnina en þar tróna kunnuglegir kappar í efstu tveimur sætunum Viðar Ingólfsson og Sigurður Sigurðarson. Viðar teflir fram þeim Gammi frá Skíðbakka 3 og Hreim frá Barkarstöðum í skeiðgreinarnar en það eru hestar sem hann hefur verið lengi með í þjálfun og ætti að þekkja vel. Lesa meira... |
| 8.4.2008 11:28 Dagskrá og ráslisti Meistaradeild VÍS ![]() Meistaradeild VÍS heldur innreið sína í Víðidalinn á fimmtudaginn þar sem verður lagt til skeiðs. Keppnin hefst klukkan 17.00 en ekki klukkan 17.30 eins og fram kom í grein sem var birt á mánudaginn. Lesa meira... |
| 7.4.2008 15:41 Gæðingaskeið og 150m skeið Meistaradeild VÍS -næsta fimmtudagskvöld kl. 17:30 á Fáksvelli. ![]() Það er úrslitastund fyrir margann knapann í meistaradeildinni næstkomandi fimmtudagskvöld. Þá verður skorið úr því hverjir eiga möguleika á titlinum. Í dag eiga allir keppendur fræðilan möguleika á sigri því fleiri stig eru í pottinum en efsti knapinn hefur safnað fram að þessu, þetta breytist í einni svipan á fimmtudaginn. Lesa meira... |
| 29.3.2008 09:10 Úrslit í fimmgangi - Meistaradeild VÍS Fimmtudagskvöldið 27. Mars fór fram fimmgangskeppni Meistaradeildar VÍS í hestaíþróttum. Meistaradeildin er nú rétt rúmlega hálfnuð og hefur aldrei verið jafn vinsæl og nú. Forkeppnin fór heldur rólega af stað keppnin var jöfn og spennandi og margar góðar sýningar þrátt fyrir hnökra í bland Sá sem kom líklega mest á óvart var Sigurður Vignir Matthíasson og Birtingur frá Selá. Lesa meira... |
| 28.3.2008 09:42 MDV fimmgangur A og B úrslit ![]() Eins og áður hefur komið fram hér á Hestafréttum þá var það Hulda Gústafsdóttir sem sigraði fimmganginn í Meistaradeild VÍS í gærkveldi á Galdri frá Flagbjarnarholti. Öll A og B úrslit mótsins eru meðfylgjandi. Lesa meira... |
| 27.3.2008 23:58 Já hún vann fimmganginn „og fór létt með‘a“ ![]() Drottningin á Árbakka, Hulda Gústafsdóttir sigraði fimmganginn í Meistaradeild VÍS nú í kvöld á Galdri frá Flagbjarnarholti. Í öðru sæti varð björninn sjálfur Sigurbjörn Bárðarson sem reið sig upp úr B úrslitum á Stakk frá Halldórsstöðum og í þriðja sæti varð Eyjólfur Þorsteinsson á Eitil frá Vindási. Lesa meira... |
| 26.3.2008 21:02 Spennan magnast – Meistaradeild VÍS hálfnuð Elka Guðmundsdóttir skrifar ![]() Á morgun, fimmtudag verður háð keppni í fimmgangi í Meistaradeild VÍS og hefst keppnin klukkan 19.30 í Ölfushöll. Fimmgangurinn er ein vinsælasta keppnisgrein hestaíþrótta enda er unun að horfa á ahliða gæðing sýna okkur rjómann af gangtegundum íslenska hestsins undir stjórn knapa síns. Meistaradeild VÍS hefur notið gríðarlega vinsælda í vetur og hafa verið slegin áhorfendamet á pöllum Ingólfshallar nánast á hverju móti. Lesa meira... |
| 26.3.2008 19:11 Ráslisti í fimmgangi í MDV ![]() Keppni í fimmgangi í Meistaradeild VÍS verður haldin á morgun í Ölfushöll á Ingólfshvoli og hefst keppni stundvíslega klukkan 19.40. Meðfylgjandi er ráslisti keppninnar. Lesa meira... |
| 25.3.2008 12:11 Fimmgangur á fimmtudag í MDV ![]() Næstkomandi fimmtudag verður keppt í fimmgangi í Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum í Ölfushöll á Ingólfshvoli. Eftir sætan sigur í Gæðingafimi situr Viðar Ingólfsson í öðru sæti með 22 stig og Þorvaldur Árni er í þriðja sæti með 20 stig og kóngurinn á Þjóðólfshaga situr á toppnum með 24 stig. Lesa meira... |
| 21.3.2008 08:43 Upptökur frá Gæðingafimi MDV á Vef Sjónvarpi ![]() Upptökur frá keppni í Gæðingafimi í Meistaradeild VÍS sem haldin var fyrir rúmri viku síðan í Ölfushöll eru komnar inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Gæðingafimin sker sig svolítið úr hvað varðar heildarupptökur þar sem heildarsýning hvers knapa er öll tekin upp, bæði í forkeppni og úrslitum og verður öll keppnin þar af leiðandi mjög löng í upptökum. Forkeppninni var skipt upp í þrjá hluta og úrslitum í tvo hluta á Vef Sjónvarpi. Lesa meira... |
| 17.3.2008 21:27 Þáttur RÚV um Meistaradeildina á Vef Sjónvarpi Hestafrétta ![]() Þáttur Meistaradeildar VÍS sem sýndur var á RÚV nú í kvöld er komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Þetta er fjórði þátturinn sem sýndur er á RÚV frá keppninni en á fimmtudaginn var keppt í Gæðingafimi. Þessi þáttagerð er í höndum Brynju Þorgeirsdóttur og verða sýndir þættir í lok hvers móts í deildinni í vetur á mánudagskvöldum. Lesa meira... |
| 13.3.2008 23:59 Viðar og Tumi sigruðu Gæðingafimina ![]() Stórsnillingurinn Viðar Ingólfsson kom sá og sigraði á Tuma frá Stóra – Hofi í Gæðingafimi í Meistaradeild VÍS sem haldin var nú í kvöld. Þorvaldur Árni Þorvaldsson átti glæsilega sýningu á stórgæðingnum Rökkva frá Hárlaugsstöðum og hafnaði hann í öðru sæti ásamt Jakobi Sigurðssyni sem reið ekki síðri gæðing, Auð frá Lundum. Í þriðja sæti hafnaði Hinrik Bragason á Lokk frá Þorláksstöðum. Lesa meira... |
| 12.3.2008 16:36 Ráslisti í Gæðingafimi í MDV 2008 ![]() Gæðingafimi er næsta grein í Meistaradeild VÍS sem haldin verður á morgun fimmtudaginn 13. mars. Keppnin fer fram í Ölfushöll á Ingólfshvoli og hefst hún stundvíslega klukkan 19.30. Meðfylgjandi er ráslisti keppninnar. Lesa meira... |



















































































