Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - www.icehorsenews.com - www.hestafrettir.dk - www.hestafrettir.se - www.hestafrettir.no - www.hestafrettir.deLófatölvuvefurRSS
21.12.2008 19:36
Hvað er rétt söfnun?
Emanon bloggar

Söfnun er hugtak, eða ferli sem aldrei er hægt að hugsa sem upphaf, endalok né eitthvert augnablik. Söfnun er á meðal margra hugsanlegra samheita um klassíska reiðmennsku. Klassísk reiðmennska sækir alltaf í að auka burð afturfóta, í gegnum hinar fjölmörgu æfingar. Söfnun er eins og allt í réttri þjálfun, ýmist aukin eða minnkuð stig af stigi, verður að vera byggð á ítarlegri þekkingu knapans til þess að árangur eigi að nást.

Þyngdinni verður að vera jafnt dreift á fram og afturhluta hestsins. Hesturinn má hvorki vera of mikið á frampartinum, né of mikið á afturpartinum, til að vera talinn safnaður. Söfnun er þar af leiðandi hlutfallslegt ástand, sem ríkir þegar fullkomið jafnvægi er þarna á milli.

Það er alltaf hægt að framkvæma bæði meira, og minna af söfnun. Um leið og hlutfall þyngdar milli fram og afturparts verður meira á afturfótunum miða við frjálsan og slakan hest, er hægt að tala um söfnun. Söfnun er sjaldan framkvæmd í sinni mestu mynd, enda er hesturinn þá kominn alveg á afturlappirnar.

Enga að síður felst í hugtakinu söfnun aukinn burður afturfótanna. Þar er að segja að hesturinn flytji þungamiðjuna aftur og verði þar af leiðandi í réttu jafnvægi. Allir þeir kraftar sem leiða til framhugsunar og góðrar yfirlínu eru upp sprottnir í réttu jafnvægi. Allir þeir kraftar sem leiða til framhugsunar og góðrar yfirlínu eru upp sprottnir í afturpartinum. Þar af leiðandi á söfnun við um alla þá starfsemi og æfingar sem auka burð afturfótanna. 

Hestur í söfnun notar meiri kraft í hreyfingarnar, en á sama tíma verða skrefin styttri, og má segja að hesturinn verði í heild sinni styttri. Hann kreppir afturhlutann innundir sig og getur þar af leiðandi borið framhlutan hærri og frjálsari. Bakið er ekki svagt og ekki stíft, heldur stinnt og fjaðrandi, hesturinn er afslappaður í hnakka og munnur hestsins er lifandi og mjúkur með hárfínt taumsamband.

Rétt söfnun er leið til þess að kenna hestinum að hvelfa yfirlínuna, kreppa undirlínuna. Vöðvar undir hryggsúlunni lyfta bakinu og hálsrótinni. Vinkill á lærleggnum breytist. Hálsinn langur og enni fram. Lægsti punktur yfirlínunar er frambakið.

Hérna eru nokkur dæmi um kosti þess að hesturinn sé safnaður:

-Stöðvun hestsins verður dýpri, þar að segja hesturinn stöðvar með afturhlutan undir sér og á sama tíma verður hann mun mýkri í munni. Háls hans og bógar verða afslappaðari.

-Afturfótasnúningurinn gengur betur ef hestur er rétt safnaður, oftast á vel safnaður hestur auðveldara með snúninginn ef yfirlínan er rétt.

-Hesturinn á auðveldara með að stökkva og hefur meira jafnvægi af því hann stækkar skrefið á afturfótunum og kemur þeim undir sig. Stökkið mun vera nákvæmara og með góða stjórnun.

-Betri hnakkastaða á meðan æfingin á sér stað.

Þegar þú hefur riðið hesti sem er “botn” safnaður, átt þú eftir að pæla hvernig þú gast þjálfað hest án þess að safna honum.





Til baka    






Deila
Til baka