| Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - |
|
16.9.2009 08:07 Eiginleikar og sérkenni íslenska hestsins Fróðleiksmolar
Margvísleg atriði skilja íslenska hestakynið frá öðrum og mikilvægt er að gera sér grein fyrir hverjir þessir þættir eru. Þar má meðal annars nefna fimm gangtegundir sem allar eru álitnar eftirsóknarverðar og þjálfaðar markvisst þegar hesturinn er notaður. Jafnframt má benda á mjög víðtæk ræktunarmarkmið fyrir kynið þar sem ræktunargripir eru valdir með tilliti til margra þátta, s.s. geðslags, ganghæfileika, útlits og fjölhæfni. Helstu mótunarþættir við náttúruval íslenska hestsins Hið opinbera ræktunarmarkmið fyrir íslenska hestinn
Eiginleikar sem þróuðust í harðbýlu landi Stærð og þungi Sérkenni Ofantaldir eiginleikar gera íslenska hestinn sérstakan og eftirsóknarverðan fyrir marga. Sérstaklega er það þó hinar fjölbreyttu gangtegundir, styrkur og traust lund sem gera hann eftirsóknarverðan sem reiðhest og keppnishest fyrir ólíka einstaklinga allt frá börnum og byrjendum til færasta keppnisfólks. Íslenski hesturinn er á mörkum þess að vera skilgreindur sem smáhestur (pony) eða hestur sem er yfir smáhestastærð, þ.e. yfir 145-148 cm á herðakamb, en misjafnt er milli landa hvar skilgreindur munur á smáhesti og hesti liggur. Það er mikill breytileiki í stærð íslenska hesta en almennt er talið að heppileg stærð sé á bilinu 135-145 cm á stöng, á herðakamb. Smáhestar eru oft taldir hafa rólegra og yfirvegaðara geðslag en stærri hestakyn og víða um heim eru “pony”hestar einungis notaðir fyrir börn þegar þau eru að stíga sín fyrstu skref í hestamennsku, en síðan þegar þau hafa náð nokkurri færni á hestbaki fá þau “alvöru” hest. Það er einnig útbreidd skoðun að smærri hestkyn geti ekki vegna smæðarinnar borið fullorðna einstaklinga. Íslenski hesturinn er ekki dæmigerður smáhestur þar sem hann hefur mikla kosti sem reiðhestur, góðan vilja og ákjósanlegt geðslag til þess að gegna mjög fjölbreyttu hlutverki í þjónustu við manninn. Jafnframt hefur hesturinn borið einstaklinga af öllum stærðum og gerðum í gegnum tíðina án þess að það væri vandkvæðum bundið, t.d. hvað varðar styrk og þol. Í samanburði við önnur hestkyn í heiminum stendur hann þeim því fyllilega jafnfætis. | Til baka | ||||