Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - www.icehorsenews.com - www.hestafrettir.dk - www.hestafrettir.se - www.hestafrettir.no - www.hestafrettir.deLófatölvuvefurRSS
21.4.2009 15:40
Hafa skal það er sannara reynist
Bréf eftir Hólmgeir Valdemarsson
Hestafréttum barst bréf frá Hólmgeiri Valdemarssyni, en í bréfinu er Hólmgeir að lýsa óánægju sinni á skrifum Jens Einarssonar á www.seisei.is um nafnagift Top Reiter-hallarinnar sem nýlega var vígð fyrir norðan. Jens Einarsson er okkur hestamönnum vel kunnur fyrir frábæra fréttamennsku og góðar greina. Hér fyrir neðan er umrætt bréf.


Ég var dapur í huga og með óbragð í munni er ég las greinarskrif Jens Einarssonar, á einkasoravef hans seisei.is.
 
Mér finnst með hreinum ólíkindum að maður sem telur sig til vera hæfan til umfjöllunar um hin ýmsu mál innan hestamennskunnar, leyfi sér að senda frá sér annað eins blaður og ósannindi sem raun ber vitni.
 
Tilefni minna skrifa er skrif hans á áðurnefndum vef undir yfirskriftinni " Æ sér gjöf að gjalda". Þessi grein er með þeim ólíkindum að ógleði veldur hjá þeim er sannast þekkja.
 
Hafa skal það er sannara reynist.   Það máltæki hefur Jens Einarsson trúlega ekki hugsað þegar hann skrifaði þennan pistil sinn. Mér er svo sem skítt sama hvaða skoðun hann hefur á nafngiftum íþróttamannvirkja eins og Egilshallarinnar sem er styrkt af Ölgerð Egils Skallagrímssonar og hestamenn hafa notið nú síðast í Ístöltkeppni. Töltkeppni á Landsmóti hestamanna sem var skírð Icelandair keppnin og svo má lengi telja.
 
Hestamannafélagið Léttir áttil 80 ára afmæli 5 nóvember sl.
af því tilefni hringdi Herbert Ólason í mig og sagði mér það að á þessum tímamótum þar sem félagið væri að taka þessa glæsilegu reiðhöll í notkun, langað hann og hans fyrirtæki að senda glaðning til félagsins. Ég sagði að bragði að það væri fallega hugsað. Hann sagði þá eitthvað á þá leið að hann hafi verið fyrsti formaður íþróttadeildar Léttis og nú loks þegar höllin væri að koma myndi barna og unglingastarf félagsins stóreflast og af því tilefni myndi hann senda okkur reiðtygi á tíu hesta til til eflingar æskulýðsstarfs. Í bréfinu sem ég las svo frá Herberti sagðist hann jafnframt senda hátalarakerfi í höllina til þess að hægt yrði að koma kennslunni til skila.
Allt var þetta efnt.

Þeir sem þekkja Herbert Ólason vita að hann gefur kvaðalaust. Það var svo einhliða ákvörðun stjórnar Léttis að stinga upp á því við þá feðga að skíra höllina a.m. tvö næstu árin Top Reiter höllin.
Til andlegrar léttbæringar þessum illa þenkjandi sorapenna veit ég að ef þeir feðgar eftir tvö ár telja sig ekki vilja framlengja nafn hallarinnar eftir vörumerki sínu sem eins og menn vita nefnist á íslensku Úrvals knapar, munum við Léttismenn ekki leita til hans með nafngift eða höfðinglega styrki.

Með engri virðingu fyrir skrifum sem þessum.
Hólmgeir Valdemarsson.

Hér er umrædd grein sem Jens Einarsson skrifaði á vef sínum www.seisei.is:

Æ sér gjöf til gjalda 

Það voru mistök hjá Léttismönnum að selja nafn nýju reiðhallarinnar sinnar á útsölu — fyrir „gjöf“: Hljóðkerfi og hnakka. Top Reiter höllin!

Reiðhöll er ekki deild í fótbolta. Heldur meiri háttar bygging sem mun standa til langrar framtíðar. Hluti af hestamannafélaginu Létti og hestamennskunni á Akureyri. Slíkt hús á að hafa virðulegt nafn. Eigið nafn. Það á ekki að vera auglýsingapési til skamms tíma í senn: Top Reiter höllin í dag, Eimskips höllin á morgun, Steypustöðvar höllin þar á eftir, og svo framvegis.

Það voru líka mistök hjá Kóka feðgum að fara fram á slíka greiðslu fyrir „gjöfina“. Það gerir hana að engu. Að færa sínu gamla félagi myndarlega gjöf er flott. Að vera sæmdur heiðursmerki félagsins í kjölfarið er viðeigandi. Að hengja skilyrði á gjöfina er hins vegar of 2007-lélegt til að geta verið satt. Það lýgur ekki hið fornkveðna: „Æ sér gjöf til gjalda“.





Til baka    






Deila
Til baka