| Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - |
|
23.9.2009 12:19 Taumhald Fróðleiksmolar
Það er því gríðarlega mikilvægt að hendur knapans séu næmar og eftirgefanlegar og gefi jafnframt nákvæmar ábendingar með taumnum. Hesturinn finnur ef taumurinn er kreistur lítillega hvað þá ef togað er harkalega í hann. Góð áseta og gott taumhald fylgjast að þegar kemur að því að gefa hestinum nákvæmar og réttar ábendingar með taumnum. Við þekktustu reiðskóla veraldar eins og til dæmis Reiðskólann í Vín fá knaparnir ekki að nota tauminn fyrr en þeir hafa náð fullkomnu jafnvægi á baki hestsins án þess að þurfa að nota hann. Margir byrjendur eiga erfitt með að halda höndunum kyrrum þegar hesturinn hreyfir sig og lenda því oft í vandræðum með taumhaldið og það er því mikilvægt að þjálfa vel jafnvægið í byrjun áður en farið er að nota tauminn. Hendur, úlnliðir og handleggir eiga að mynda eina heild, beina línu, frá olnboga í munn hestsins. Góð æfing til þess að þjálfa næmt og eftirgefanlegt taumhald er að ímynda sér að maður haldi á einhverju í höndunum sem er brothætt eða viðkvæmt t.d. eggi sem ekki má kreista of fast svo það brotni og ekki má halda of laust um svo maður missi það. Þegar hesturinn hreyfir sig fylgja hendur knapans og taumur hreyfingu hans af mýkt og með eftirgjöf án þess þó að létt samband við munn hestsins glatist. Það er mjög algengt að taumurinn sé misnotaður sem stjórntæki og notaður til að halda sér á baki og það er mjög slæmt bæði fyrir jafnvægi knapans og hestinn. Rétt taumhald Eftirfarandi eru nokkur dæmi um rangt taumhald | Til baka | ||||||