Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - www.icehorsenews.com - www.hestafrettir.dk - www.hestafrettir.se - www.hestafrettir.no - www.hestafrettir.deLófatölvuvefurRSS
2.10.2009 11:15
Hesthúsið og umhverfi hestsins
Fróðleiksmolar
Hesturinn er hreinn og honum líður vel.
Hesturinn er hreinn og honum líður vel.

Hesturinn þarf oft að eyða miklum tíma í hesthúsinu hér á Íslandi sérstaklega yfir vetrartímann. Hesthúsið er hans heimili og það þarf að vera hreint, bjart, þurrt og laust við slysagildrur. Hesturinn getur ekki sjálfur ákveðið hvernig umhverfi hans er og því er mikilvægt að fylgjast með að honum líði vel, hann sé fóðraður reglulega, hafi alltaf aðgang að vatni og að það sé þurrt og þokkalegt í stíunni hans.

Fóður, sérstaklega fóðurbætir, þarf að vera á öruggum stað þannig að þótt hesturinn sleppi úr stíunni geti hann ekki étið yfir sig. Það getur verið mjög hættulegt fyrir hestinn og valdið sjúkdómum eins og hrossasótt og hófsperru en nánar verður fjallað um þá síðar. Stíur þurfa að vera það rúmgóðar og hreinar að hesturinn geti lagst niður og hvílt sig.
 
Gæta þarf að fóðrun hestsins og fylgjast með að hún sé í lagi og að ábyrgur aðili sjái um að gefa honum reglulega a.m.k.tvisvar á dag, en jafnframt þarf að viðra hestinn daglega. Til þess að hlífa fótum hestsins þarf að passa að hann standi á hæfilega mjúku undirlagi, t.d. sagi og skít eða góðum gúmmímottum. Ekki er gott fyrir hestinn að standa á steyptu gólfi tímunum saman þar sem það veldur of miklu álagi á fætur hans. Undirlag of þurrt þá er hætta á að hófarnir verði stökkir og harðir en sé það of blautt þá er hætta á að þeir morkni og molni niður.

Nú til dags eru flestir hestar hafðir lausir í stíum en fyrr á tímum voru hestar oft bundnir á litla, þrönga bása tímunum saman og gat það haft slæm áhrif á þá vegna hreyfingarleysis. Ef nauðsynlegt er að hafa hesta á básum þá þarf að gæta þess vel að þeir fái næga hreyfingu, geti lagst niður og nái vel í fóður og vatn. Það þarf líka að gæta að því, séu fleiri en einn hestur saman í stíu, að jafnræði sé með þeim en að annar hesturinn kúgi ekki hinn. Það getur lýst sér til dæmis í því að sá sem er lægra settur fær minna að éta, er bitinn og rekinn út í horn. Þessu þarf að fylgjast vel með og raða hestunum þannig upp í hesthúsinu að öllum líði vel, fái nóg að éta og geti lagst. Það getur verið nokkur hausverkur að finna hesta sem passa vel saman í stíu og í upphafi vetrar þegar hestar eru nýkomnir á hús getur þurft að færa þá nokkrum sinnum á milli stía og skipta um félaga þar til friður kemst á. Einnig er mikilvægt að ekki séu slysagildrur í hesthúsinu, s.s. naglar sem standa út úr veggjum, hvassar brúnir eða göt í gólfi sem hesturinn getur fest sig í. Óþarfa lausir hlutir, bönd og drasl á ekki að sjást í hesthúsi og snyrtilegt hesthús er mun öruggara og býður upp á meiri vellíðan en ósnyrtilegt.

Andrúmsloftið í hesthúsinu á að vera rólegt og yfirvegað, laust við hávaða, læti og stress og ber að hafa hugfast hversu næm skynfæri hestsins eru og þörf hans fyrir öryggi og reglu. Einnig ber að hafa í huga að hesturinn hefur mikla hreyfiþörf og að nauðsynlegt er fyrir hann að fá að viðra sig, njóta samvista við aðra hesta og geta hlaupið um jafnvel þó svo hann sé á húsi, t.d. fyrir vetrartímann. Reykingar ættu í öllum tilvikum að vera bannaðar í hesthúsum. Jafnframt á þar að vera sjúkrakassi á aðgengilegum stað.

Heimild: Knapamerki 1
Höfundur og ritstjóri: Helga Thoroddsen.
Útgefandi: Háskólinn á Hólum





Til baka    






Deila
Til baka