Atli Guðmundsson og Ormur frá Dallandi sigruðu í gæðingafimi Meistaradeildar VÍS sem haldin var í kvöld í Ölfushöll á Ingólfshvoli. Í kvöld sást það greinilega að þessi keppni er komin til að vera og eigum við til knapa og hross á heimsmælikvarða hvað gæðingafimi varðar.Gæðingafimi er keppni í reiðlist og hefur engin keppnisgrein jafn óbundið form, og fáar greinar gefa betra tækifæri til glæstra samskipta manns og hests.
Í öðru sæti varð Sigurður Sigurðarson á Sporða frá Höskuldsstöðum sem áttu einnig góða sýningu og í þriðja sæti lentu svo Þorvaldur Árni Þorvaldsson á Rökkva frá Hárlaugsstöðum. Ölfushöllin var þétt setin og var stemningin hreint frábær. Öll úrslit keppninnar verða birt hér í fyrramálið.














