Hin árlega Þjálfararáðstefna FEIF var haldin að Hólum þann 1. september og voru gestir rétt um 100 talsins frá 12 þjóðum. Þetta er í fyrsta skipti sem ráðstefnan var haldin á Íslandi og var mikil ánægja með bæði efnisþætti og alla umgjörð. Farið var yfir stig af stigi hvernig uppbygging hests er kennd að Hólum, allt frá fortamningum til þjálfunar keppnishesta.
Eyjólfur Ísólfsson, yfirreiðkennari Hólaskóla, sá um uppsetningu og framkvæmd faglegu atriðanna ásamt öðrum reiðkennurum við skólann. Að auki voru fengnir að útskrifaðir nemendur til aðstoðar sem og tveir reiðkennarar frá Félagi tamningamanna. Mest var byggt upp á sýnikennslu þar sem útskýrt var jafnóðum hvað fram fór. Í lok hvers meginkafla voru svo hópaskiptar umræður þar sem þátttakendur gátu einnig komið fram með spurningar.
Kom fram í umræðuhópum gestanna að margir hefðu aldrei séð svona mikið af hamingjusömum hestum og að greinilegt væri að sú markvissa tamning og þjálfun hests sem fram fer á Hólum skili sér til fulls. Margir sögðust einnig fyrst núna skilja hversu magnað menntakerfið í hestamennsku er á Íslandi þegar komið er upp á þessi efri stig og ljóst væri að Hólaskóli væri leiðandi í þeim efnum í Íslandshestaheiminum. Einnig kom fram ósk um að sams konar ráðstefna yrði haldin að Hólum fyrir dómara enda afar mikilvægt að allir geirar hestamennskunnar eigi gott samstarf og vinni að sömu markmiðum með sífelldri þróun til hins betra.
Frett www.holar.is














