Minna gat það ekki verið

Hruni frá Breiðumörk 2 er 0,1 kommu frá því að komast inn á FM07 í flokk 6 vetra stóðhesta, en inntökuskilyrði í þann flokk er 8,10 í aðaleinkunn. Hruni var sýndur á kynbótasýningu á Sörlastöðum og kemur út með 8,09...

Hruni frá Breiðumörk 2 er 0,1 kommu frá því að komast inn á FM07 í flokk 6 vetra stóðhesta, en inntökuskilyrði í þann flokk er 8,10 í aðaleinkunn. Hruni var sýndur á kynbótasýningu á Sörlastöðum og kemur út með 8,09 í aðaleinkunn. Hann fær mjög góðan hæfileikadóm sem klárhestur, 8,41 fyrir hæfileika, en ekki nema 7,61 fyrir byggingu, sem dregur hann niður. Hann fær fjórar níur: Fyrir tölt, brokk, vilja/geð og fegurð í reið, og eina níu fimmu, fyrir stökk. Margir ala þá von í brjósti fá að sjá Hruna leika listir sínar á heimaslóð á Iðavöllum í sumar og vonandi verður þessi komma ekki til að koma í veg fyrir það.

Frétt FM 2007