Nafnlaust bréf sem barst Hestafréttum

Umhverfisstofnun vill vekja athygli hestamannafélaga á Íslandi á leyfisskyldu vegna dýrasýninga, þ.m.t. hvers konar hestamóta. Í 20. gr. reglugerðar nr. 1077 frá 2004 segir meðal annars: „ Leyfi Umhverfisstofnunar þarf til hvers konar ræktunar, verslunar, þjálfunar, tamningar, geymslu og leigu...

Umhverfisstofnun vill vekja athygli hestamannafélaga á Íslandi á leyfisskyldu vegna dýrasýninga, þ.m.t. hvers konar hestamóta. Í 20. gr. reglugerðar nr. 1077 frá 2004 segir meðal annars:

„ Leyfi Umhverfisstofnunar þarf til hvers konar ræktunar, verslunar, þjálfunar, tamningar, geymslu og leigu dýra í atvinnuskyni sem ekki fellur undir búfjárhald. Einnig þarf leyfi Umhverfisstofnunar til að setja á stofn dýragarða og halda dýrasýningar “.

Umhverfisstofnun mælist til þess að hestamannafélög sæki um leyfi fyrir hvers konar hestamótum og öðrum dýrasýningum sem haldin eru á vegum félaganna. Sótt er um leyfi á þar til gerðu eyðublaði sem er að finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar á slóðinni http://ust.is/media/fraedsluefni/Umsokn_um_leyfi_vegna_dyrahalds_i_atvinnuskyni2.pdf. Með umsókninni þarf að fylgja greinargerð þar sem fram kemur hvaða tegundir ætlunin er að sýna, hámarksfjölda dýra, fjöldi starfsmanna, upplýsingar um vistarverur, fóðrun, vörslu og meðferð dýranna og lýsing á staðsetningu starfseminnar, afstöðu og yfirlitsteikningar yfir hús, búr, stíur o.þ.h. Auk þess þarf að fylgja umsókn staðfesting dýralæknis um að hann taki að sér að tryggja viðunandi aðbúnað, umhirðu og meðferð dýranna á meðan á viðburði stendur. Umsóknin ásamt fylgigögnum þarf að berast til stofnunarinnar a.m.k. tveimur vikum fyrir fyrirhugaðan sýningardag(a).

Viðurlög við brotum umræddrar reglugerðar eru skv. 18. – 21. gr. laga nr. 15 frá 1994.

Skv. gjaldskrá Umhverfisstofnunar kostar leyfið 9.500 kr.