Félag tamningamanna í samvinnu við Hólaskóla býður upp á einstakt
reiðnámskeið í vetur með Eyjólfi Ísólfssyni. Um er að ræða fjögurra helga
námskeið og er kennslan bæði verkleg og bókleg.
Hver þátttakandi mun fá tvo verklega tíma á dag auk bóklegrar kennslu. Farið
verður skipulega í uppbyggingu og þjálfun hestsins. Lögð verður áhersla á
markvissa og kerfisbundna þjálfun og uppbyggingu og þess vegna er nauðsynlegt að
hvert par þ.e. maður og hestur fylgist að út allt námskeiðið. Námskeiðið fer
fram á Hólum í Hjaltadal í Þráarhöllinni. Fjöldi þátttakenda á námskeiðið er
takmarkaður og meðlimir Félags tamningamanna munu ganga fyrir.
Tími
21.-22. janúar,
4.-5. febrúar,
18.-19. febrúar,
18.-19.
mars
Áætlaður kostnaður
Þátttökugjald (kennsla og aðstaða): 56.000 krónur
(ábúendur á lögbýlum fá styrk að upphæð 26.400 krónur úr Framleiðnisjóði og
greiða því 29.600 krónur).
Boðið verður upp á mat og gistingu á Hólum gegn
sanngjörnu verði.
Skráning
Í síma 455-6300 eða í tölvupósti (solrun[hjá]holar.is) í síðasta
lagi 12. janúar.
Frétt holar.is














