Dýralæknafélag Íslands og Járningamannafélag Íslands sameina krafta sína í að halda námsstefnu bæði fyrir járningamenn og dýralækna. Segja má að námsstefna þessi marki ákveðin tímamót, í fyrsta lagi fyrir það að nú hefur í fyrsta sinn á Íslandi verið stofnaður formlegur félasskapur járningamanna. Járningamannafélag Íslands var stofnað 18. mars sl. Í annan stað markar þetta tímamót hér á landi fyrir þær sakir að þessi tvö félög sameina krafta sína í að bjóða uppá námsstefu á heimsmælikvarða.
Þetta er fyrsta námsstefnan sem félögin bjóða uppá og vonandi ekki sú síðasta. Tilgangurinn með námsstefnunni er að auka fræðslu á sviði járninga og auka færni í hinum ýmsu aðferðum við járningar og tengja þær sjúkdómum í fótum hesta. Allt í öllu er ætlunin að stuðla að betri hófhirðu hrossa, bæta líðan þeirra og að stuðla að skjótum og góðum bata þeirra sem eiga við fótamein að stríða. Þetta eykur velferð hrossa.
Miklar framfarir hafa orðið í þessari grein á síðustu árum. Það er markmið námsstefnunnar, að kynna fyrir járningamönnum. dýralæknum og öðrum á Íslandi, sem áhuga hafa, allt það nýjasta sem völ er á í þessum fræðum í heiminum í dag. Þá er það ekki síður tilgangurinn að auka samvinnu þessara tveggja stétta hvað varðar meðferð á fótameinum í hrossum.
Hans Castelijns er dýralæknir og járningamaður sem hefur tileinkað sér járningar og umhirðu hófa. Hann býr í Toskana á Ítalíu, er kennari við dýralæknadeild háskólans í Perugia á Ítalíu. Hans hefur skrifað fjölda greina um járningar, sjúkrajárningar og hófhirðu. Járningar sem meðferð við fótameinum er nokkuð sem Hans hefur lagt mikla áherslu á. Hans er afar vinsæll fyrirlesari og hefur haldið fyrirlestra og námskeið víða um heim.
Aðrir fyrirlesarar eru:
Joep Luber frá Luwex í Þýskalandi, sem mun kynna botna, kransa og hóffylli- og hófviðgerðarefni fráLuwex.
Erik Lokhorst Vettec, hóffylli og hófviðgerðarefni
Vís Agria, sem kynnir tryggingar á hestum.
Tímasetning: laugardaginn 27. og sunnudaginn 28. maí 2006.
Fyrirkomulag: Fyrirlestrar fyrir hádegi og verkleg kennsla eftir hádegi.
Staðsetning: Félagsheimili hestamannafélagsins Gusts í Kópavogi.
Námsstefnan er öllum opin.
Áhugasamir nálgist skráningareyðublöð hjá Þorvaldi í síma 8925785 eða Sigurði Torfa í síma 8993554. Ennfemur er hægt að nálgast þau á www.dyr.is.
Námskeiðsgjald er kr 15.000,- fyrir félagsmenn DÍ og JÍ.
(DÍ styrkir hvern sinna félagsmanna um kr 5.000,-.)
Námsskeiðsgjald fyrir þá sem ekki eru félagar í DÍ eða JÍ: kr 17.500,-.
Innifalið í námskeiðsgjaldi er léttur hádegisverður, kaffi og meðlæti báða dagana.
Tilkynna þarf þátttöku fyrir 17. maí nk.
Námskeiðsgjald þarf að inna af hendi fyrir 24. maí nk.
Fyrirhugaður er sameiginlegum kvöldverður fyrir þáttakendur í Fjörukránni í Hafnarfirði laugardaginn 27. maí. Greiða þarf sérstaklega fyrir kvöldverðinn.
Makar velkomnir.
Möguleiki er á ferð með rútu að kvöldverði loknum um suðurland austur á Hellu.
Styrktaraðilar: Vís Agria, Félag Hrossabænda og Bændasamtök Íslands,
Heatamannafélagið Gustur Kópavvogi, O. Johnson Kaaber
DAGSKRÁ
Laugardagur 27. maí.
9:00 – 10:00 Sjúkrajárningar vegna liðbólgna Arthritis/Arthrosis
10:00 – 10:15 Kaffihlé
10:15 – 11:00 Sjúkrajárningar vegna Sinaskeiðabólgu
11:00 – 11:10 Hlé
11:10 – 12:00 Sjúkrajárningar vegna Sinaskeiðabólgu frh.
12:00 – 13:00 Liðbandsbólgur
13:00 – 13:40 Hófbeinsbrot
13:50 – 17:00 Verkleg kennsla
19:00 Sameiginlegur kvöldverður.
Sunnudagur 28. maí
9:00 – 10:00 Ígerð í hóf
10:00 – 10:15 Kaffihlé
10:15 – 11:00 Rot í hófbotni (Canker)
11:00 – 11:10 Hlé
11:10 – 12:00 Æxlisvefur í hornlagi hófs (Keratoma)
12:00 – 13:00 Hádegisverður
13:00 – 13:40 Hófsperra
13:50 – 16:00 Verkleg kennsla.
16:00 Námsstefnu slitið
Styrktaraðilar: Vís Agria, Félag Hrossabænda og Bændasamtök Íslands,
Heatamannafélagið Gustur Kópavvogi, O. Johnson Kaaber














