Nikólína Rúnarsdóttir á Júpíter frá Egilsstaðabæ bar sigur úr býtum í tölti áhugamanna á FM07 eftir spennandi úrslit. Í öðru sæti varð Rakel Sigurhansdóttir á Streng frá Hrafnkelsstöðum, en hún og Strengur eru að verða þekkt par á keppnisbrautinni. Marteinn Gíslason og Þyrnirós frá Ártúni áttu hins vegar ekki góðan dag, komu efst inni í úrslit en enduðu í fimmta sæti. Úrslit urðu annars þessi:
1 Nikólína Rúnarsdóttir á Júpíter frá Egilsstaðabæ 7,28
2 Rakel Sigurhansdóttir á Streng frá Hrafnkelsstöðum 6,56
3 Anna Catharina Gros á Glóð frá Ytri-Bægisá 1 6,56
4 Einar Ben Þorsteinsson á Skrekk frá Hnjúkahlíð 6,44
5 Marteinn Gíslason á Þyrnirós frá Ártúni 6,39














