Í dag koma 120 íslenskir hestar og knapar þeirra frá öllum norðurlöndunum til Landsskuepladsen í Herning. Danska íslandshestafélagið vinnur þessa dagana á fullu til þess að vera tilbúin til þess að taka á móti hestum, knöpum og áhorfendum frá öllum Norðurlöndunum. Norska meistaramótið er haldið annað hvert ár og er haldið til skiptis í löndunum.
Um það bil 140 starfsmenn mótsins eru tilbúnir til þess að gera meistaramótið að ógleymanlegri upplifun fyrir þátttakandann. Mótshaldarar eiga von á 8000 áhorfendum frá öllum norðurlöndunum.
Árið 2003 héldu danir síðast alþjóðlegt meistaramót, sem þá var best heppnaða heimsmeistaramót íslenska hestsins fram að því. Í það skiptið var það einnig haldið í Landskuepladsen í Herning. Þátttökulönd eru Ísland, Noregur, Svíþjóð, Finnland, Færeyjar og Danmörk. Keppninni er skipt í 3 aldurshópa, það eru börn 12-15 ára, ungmenni 16-21 árs og að lokum fullorðinsflokkur 22 ára og eldri. Hvert land getur sent í keppnina 12 fullorðna, 8 ungmenni og 5 börn.














