“Á hestbaki 2” form og jafnvægi eftir Eyjólf Ísólfssom tamningameistara er komin út á DVD á fimm tungumálum. Íslensku, dönsku, sænsku, ensku og þýsku. Myndin er sjálfstætt framhald af fyrri mynd Eyjólfs þar sem hann heldur áfram að fjalla um tamningar og þjálfun. Myndin skiptist í sjö mismundani kafla.
1: Hesturinn. Fjallað er um bygginu hestsins og forsendur hans til að bera manninn.
2: Hringtaumur. Sýnt er hverning nota má hringteymingu til að kenna hestinum rétta líkamsbeitingu.
3: Vinstri og hægri áseta og samverkandi taumar. Sýnt er hverning vinstri og hægri áseta er notuð og útskýrt hvernig samverkandi taumar stjórna bógum hestsins.
4: Hringir og slöngulínur. Sýnt er hvernig hesturinn er gerður jafnspora sem er forsenda fyrir söfnun og meiri afköstum á gangi.
5: Tölt við hendi. Þjálfun við hendi býður uppá mikla möguleika og hefur góð áhrif á samspil manns og hests
6: Form. Rétt grunnform er forsenda réttrar líkamsbeitingar, betra jafnvægis söfnunar og bættra hreyfinga sem stundum er kallað keppnisform
7: Opin sniðgangur. Sýnt er hverning opin sniðgangur er í senn liðkandi og safnandi æfing og er framúrskarandi til að bæta töltið.














