Ný þjálfunaraðferð á Íslandi

Á vefsíðu Vakurstaða kemur fram að ný þjálfunaraðferð hefur verið tekin upp hér á Íslandi. Vatnsgöngubretti sem virkar þannig að hesturinn er leiddur inn í vatnstank, einskonar bás, og hann svo fylltur af vatni eftir þörfum t.d. upp að hnjám...
Á vefsíðu Vakurstaða kemur fram að ný þjálfunaraðferð hefur verið tekin upp hér á Íslandi. Vatnsgöngubretti sem virkar þannig að hesturinn er leiddur inn í vatnstank, einskonar bás, og hann svo fylltur af vatni eftir þörfum t.d. upp að hnjám eða brjósti eða ofar, allt eftir þjálfunarstiginu sem hesturinn er kominn í.

Hægt er að stilla hita vatnsins og gönguhraða þjálfunarbrettisins eftir þörfum. Það eru feðgarnir Viðar Ingólfsson og Ingólfur Jónsson á Kvíarhóli sem hafa komið sér upp þessari aðstöðu í hesthúsinu á Kvíarhóli.

Þegar blaðamaður kom við á Kvíarhóli var liðsmaður Málningar í VÍS deildinni, Þorvaldur Árni Þorvaldsson, að þjálfa hest á brettinu og lét hann vel af aðferðinni. Þorvaldur sagði að lítil reynsla væri kominn af þessari aðferð fyrir íslenska hestinn hér á landi en erlendis væri þetta mikið notað.
Viðar Ingólfsson sagði í samtali að aðferðin þjálfaði gríðalega vel bak, bóga og fætur hrossa.

Á Kvíarhóli er pláss fyrir tuttugu og fimm hross en áætlað er að bæta við aðstöðuna með reiðhöll og stækkun hesthússins sem myndi þá rýma fjörtíu hross. Ljósmyndir Axel Jón.

www.vakurstadir.is