Öll úrslit frá Ístöltmótinu Svellkaldar konur sem haldið var í Skautahöllinni í Laugardal í gær eru komin inn á Vef TV Hestafrétta. Þátturinn byrjar á B úrslitum í flokki 2 síðan A úrslit í flokki 4, þar á eftir A úrslit í flokki 3, á eftir því koma A úrslit úr flokki 2 og að lokum A úrslit í flokki 1.
Þar sem forkeppnin tók á þriðju klukkustund þá tekur talsverðan tíma að
klippa það allt saman en að sjálfsögðu verður unnið í því í allan dag
og eigum við von á því að öll forkeppnin verði komin inn á Vef TV
seinnipartinn í dag.














