Opið hestaíþróttamót (UMSS) verður haldið á Sauðárkróki sunnudaginn 15. maí. Keppt verður í öllum hefðbundnum hesta íþróttagreinum ásamt létt tölt T7 (hægt og frjáls ferð) og létt fjórgang V5 (beðið um frjáls ferð á tölti, hitt eins) ef næg þátttaka næst.
Við skráningu þarf að gefa upp nafn og kennitölu knapa, nafn og fæðingarnúmer hests og keppnisgrein og uppá hvaða hönd keppandinn vill riða. Senda skráningu á betajan@simnet.is. Skráningu lykur fimmtudaginn 12. maí kl 21.00.
Skráningargjald er 3.000 kr fyrir fyrstu skráningu en 1.000 kr á næstu skráningar hjá sama knapa. Leggja skal inn á reikning UMSS: 310 – 26 – 1997 Kt: 670269-0359 skýring: nafn á hesti.
Hestaíþróttaráð Skagafjarðar














