Föstudaginn 24. febrúar næstkomandi munu Andvaramenn halda opið töltmót í Reiðhöllinni á Kjóavöllum. Boðið verður upp á eftirfarandi flokka ef næg þátttaka fæst:
- Yngri en 16 ára – Riðið verður hefðbundið töltprógram.
- Opinn flokkur – Riðið verður hefðbundið töltprógram.
- 1. flokkur – Riðið verður hefðbundið töltprógram.
- 2. flokkur – Riðið verður hægt tölt og fegurðartölt.
Stefnt er að því að mótið hefjist klukkan 19:00, en það fer eftir skráningu. Nánari upplýsingar verða veittar þegar nær dregur svo fylgist með á vefmiðlunum.
Mótanefnd Andvara




















