Opin gæðingakeppni Geysis

Opin Gæðingakeppni Geysis verður haldin dagana 9.-10. júní næstkomandi á Gaddstaðaflötum. Þetta er í fyrsta skipti sem Geysir býður upp á opna gæðingakeppni og er fólk hvatt til að taka þessa daga frá og mæta á Gaddstaðaflatir. Keppt verður í:...

Opin Gæðingakeppni Geysis verður haldin dagana 9.-10. júní næstkomandi á Gaddstaðaflötum. Þetta er í fyrsta skipti sem Geysir býður upp á opna gæðingakeppni og er fólk hvatt til að taka þessa daga frá og mæta á Gaddstaðaflatir.

Keppt verður í: Pollaflokki, Barnaflokki, Unglingaflokki,
Ungmennaflokki, A-flokki og B-flokki II (áhugamenn), A-flokki og
B-flokki I (opinn), 150 og 250 m skeiði. Að auki verður boðið upp á
keppni í flugskeiði og tölti ef næg þátttaka fæst.
Þetta er í fyrsta skipti sem Geysir opnar gæðingamót sitt og vonast
félagar til að sem flestir komi og njóti stemningarinnar sem
Gaddstaðaflatir geta boðið upp á.
Nánari upplýsingar um mótið verða birtar innan skamms.