Opin gæðingakeppni Mána og Sparisjóðsins.

Gæðingakeppni Mána verður haldin dagana 2. og 3. júní á Mánagrund. Keppt verður í :Teymingaflokki Polla, Pollaflokki, Barnaflokki, Unglingaflokki, Ungmennaflokki, A-flokki og B-flokki áhugamanna, A-flokki og B-flokki (opinn). Skráningagjald er 2.500,- kr. í allar greinar nema pollaflokkar 1.000,- kr. Skráning...

Gæðingakeppni Mána verður haldin dagana 2. og 3. júní á Mánagrund. Keppt verður í :
Teymingaflokki Polla, Pollaflokki, Barnaflokki, Unglingaflokki, Ungmennaflokki, A-flokki og B-flokki áhugamanna, A-flokki og B-flokki (opinn).

Skráningagjald er 2.500,- kr. í allar greinar nema pollaflokkar 1.000,- kr. Skráning verður mánudaginn 28. maí, kl. 20-22 í reiðhöllinni Mánagrund og fer greiðsla fram við skráningu og þurfa öll hrossin að vera grunnskráð með IS nr. Skráning er í símum : 861-2030, 848-6973, 695-0049, 891-9757, 893-0304 og 861-0012. Að sjálfsögðu verður hin fræga fjölskyldugrillveisla á laugardagskvöldinu og verður skráð í hana um leið og skráð er á mótið. Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður flokka ef ekki er næg þátttaka.

Mótanefnd Mána.