Opna Bautamótið í tölti 2012 fer fram í Skautahöllinni á Akureyri laugardaginn 18. feb. n.k. og hefst kl. 20, aðgangseyrir 1.500,- frítt fyrir 12 ára og yngri.
Skráningargjald 2.500,- Keppendur skulu hafa náð 16 ára aldri. Hjálmaskylda á svellinu. Keppendum er heimilt að skrá fleiri en eitt hross til leiks. Riðnir 3 hringir á tölti (hægt, hraðamun og fegurðar). Tvöfalt vægi á hægatöltinu. Æfingatími fyrir keppendur er föstudagskvöldið 17. feb. kl. 21:15 – 22:15 (innifalið í skráningagjaldi). Þar hafa einungis rétt á að mæta þau hross sem skráð eru til leiks með “sínum” knöpum. Þátttökugjald greiðist á staðnum. Tekið er við skráningum í netfang fornhagi@fornhagi.is og í símum: 462-2101, 893-9579 (Anna) og 893-1579 (Arnar) til kl. 21:00 miðvikudagskvöldið 15. feb. n.k. Að móti loknu verður opið hús í TopReiterhöllinni, reiðhöll Léttisfélaga. Allir hjartanlega velkomnir á Bautamót 2012
Bautinn Akureyri.














