Opna Bautamótið í tölti fór fram í gærkvöldi í Skautahöllinni á Akureyri. Mikil þátttaka var venju samkvæmt og voru 71 hross skráð til leiks. Það var mál manna að aldrei hafi verið riðin jafnsterk úrslit á þessu móti og hrein unun á að horfa. Þorsteinn Björnsson á Ögra frá Hólum átti frábæra sýningu og brekkan var sannalega hans enda hefur líklega heyrst í næstu bæjarfélög fagnaðarlætin en dyggur stuðningshópur hans lét ekki sitt eftir liggja. Framúrskarandi hross þarna í A-úrslitnum, reiðmennskan í algjörum sérflokki og á meðal reyndari hesta í B-úrslitum komu þar yngri hross sem vöktu verulega athygli. Prúðir knapar og framúrskarandi hross einkenndu þetta níunda Bautamót í tölti.
A-úrslit
1. Þorsteinn Björnsson – Ögri frá Hólum 7,00/7,83
2. Ísólfur Líndal Þórisson – Kraftur frá Efri-Þverá 7,17/7,75
3. Barbara Wenzl – Dalur frá Háleggsstöðum 6,90/7,46
4. Sölvi Sigurðarson – Glaður frá Grund 6,67/7,13
5. Magnús B. Magnússon – Farsæll frá Íbishóli 6,53/6,83
B-úrslit
5. Magnús B. Magnússon – Farsæll frá Íbishóli 6,53/6,71
6. Ásdís Helga Sigursteinsdóttir – Von frá Árgerði 6,53/6,54
7. Þorbjörn Hr. Matthíasson – Týr frá Litla-Dal 6,53/6,50
8. Nikólína Rúnarsdóttir – Júpiter frá Egilsstaðabæ 6,47/6,29
9. Gísli Steinþórsson – Skrugga frá Kýrholti 6,47/6,08
Sölvi Sigurðarson reið þremur hestum í forkeppninni og kom þeim öllum í úrslit. Hann ákvað að ríða Glað frá Gund í A-úrslitunum en einnig náðu í úrslit þeir Straumur frá Enni með 6,60 og Gustur frá Halldórsstöðum með 6,53
Gefendur vinninga í áhorfendahappdrættinu voru Bautinn, Fákasport og eigendur stóðhestanna Eldjáns frá Ytri-Brennihóli og Þorra frá Möðrufelli.














