Opna Reykjavíkurmeistaramótið

Skráning fer fram í félagsheimili Fáks í dag fimmtudaginn 27. apríl milli kl 17 og 19. Einnig verður tekið við skráningu í síma 567 2166 á sama tíma en aðeins gegn kortanúmeri. Skráningargjöld: Börn 1.500 kr. unglingar/ungmenni 2.000 kr. Fullorðnir...

Skráning fer fram í félagsheimili Fáks í dag fimmtudaginn 27. apríl milli kl 17 og 19. Einnig verður tekið við skráningu í síma 567 2166 á sama tíma en aðeins gegn kortanúmeri. Skráningargjöld: Börn 1.500 kr. unglingar/ungmenni 2.000 kr. Fullorðnir 3.500 kr.

Öll hross þurfa að vera grunnskráð í World Feng.

Opna Reykjavíkurmeistaramótið verður haldið á félagssvæði Fáks í Víðidal dagana 10.-14. maí. Mótið er World Ranking mót og er keppt skv. FIPO reglum. Íþróttadeild Fáks áskilur sér rétt til að fella niður þær greinar sem ekki fæst næg þátttaka í. Þeir keppendur sem hafa skráð sig í viðkomandi grein verða færðir upp um flokk eða flokka.

Keppt verður í eftirtöldum greinum:
100 m skeiði
150 m skeiði
250 m skeiði
Tölti T-2 (ungm., 2 fl., 1 fl., meistarafl.)
5 gangi (ungl., ungm., 2 fl., 1 fl., meistarafl.)
Gæðingaskeiði (ungl., ungm., 2.fl., 1.fl., meistarafl.)
Tölti T-1 (börn, ungl., ungm., 2. fl., 1. fl., meistarafl.)
4 gangi (börn, ungl., ungm., 2. fl., 1. fl., meistarafl.)
fimi (börn, ungl., ungm., 2. fl., 1. fl., meistarafl.)
Kveðja,
Íþróttadeild Fáks.