Hestamannafélagið Sleipnir í samstarfi við Lögmenn Suðurlandi, Baldvin og Þorvald og Toyota Selfossi munu halda tölt- og skeiðmót í Ölfushöllinni þann 8. apríl. Keppt verður í tölti í flokkunum.17 ára og yngri, opinn flokkur og áhugamenn. Einnig verður keppt í skeiði í gegnum höllina.
Væri þetta góð upphitun fyrir Meistaradeildina. Byrjar keppnin stundvíslega kl. 18:30.
Skráningargjald er 1500 kr.- fyrir 17 ára og yngri. 2000 kr.- fyrir aðra.
Boðið verður uppá að fá stíu á meðan keppni stendur og þarf að taka það fram við skráningu.
Skráning verður í Hlíðskjálf eða í síma 858-7121 / 482-2802 mánudagskvöldið 6. apríl milli kl. 20:00 – 22:00. Hægt verður að greiða skráningargjaldið með símgreiðslu.
Móið er öllum opið.
Hvetjum alla til að mæta og hafa gaman!
Kveðjur, mótanefnd














