Pollar á gæðingar

Á gæðingamóti Fáks og Lýsis er gert ráð fyrir að POLLAR mæti til leiks mánudaginn 28 maí stundvíslega kl. 14:30 á Hvammsvöllinn. Vanir pollar mæta fyrstir og eiga helst að vera í félagsbúningi sínum (ekki skilyrði) og ríða hægt tölt...

Á gæðingamóti Fáks og Lýsis er gert ráð fyrir að POLLAR mæti til leiks mánudaginn 28 maí stundvíslega kl. 14:30 á Hvammsvöllinn. Vanir pollar mæta fyrstir og eiga helst að vera í félagsbúningi sínum (ekki skilyrði) og ríða hægt tölt tvo hringi og síðan frjálsa ferð tvo hringi.

Síðan koma inn á völlinn óvanir pollar og þeir eiga helst að mæta í grímubúningum. Að minnsta kosti einn fullorðinn aðili þarf að teyma undir óvana pollanum. Teyma skal einn hring á vellinum og síðan sameinast allir pollar fyrir framan dómpall í verðlaunaafhendingu.

Allir pollar sem hafa skráð sig til leiks fá sérstakan verðlaunapening fyrir þátttöku sína í þessu móti og einnig sérstaka gjöf frá heildversluninni Kleifarás ehf. en það eru Jóhanna Þorbjargardóttir okkar Fáksmanna og móðir hennar Þorbjörg Sigurðardóttir sem veita þessi verðlaun og gefa.

Gæðinganefnd Fáks sendir þeim sínar bestu þakkir fyrir þetta framlag þeirra sem bæði hvetur og styrkir pollana sem eru að stíga sín fyrstu skref í hestamennskunni.

Athugið enn er hægt að skrá sig til leiks. Tekið verður á móti skráningum í dómpalli á meðan keppni stendur yfir. Skráningargjald er kr. 1000,-

Kveðja frá Gæðinganend Fáks.