“Ef maður hrífst af gjörningi þá er hann list.” sagði vinur minn kynbótadómarinn við mig. “Þannig að hrífandi reiðmennska er reiðlist.” hélt hann áfram í tilraun sinni að fá mig til að greina á milli hvenær reiðlist er framin og hvenær ekki. Við ræddum um þetta í skítugum dómskúr á milli þess að við dæmdum kynbótahross. Á meðan hver knapi sinnti sínu hluverki þá veltum við fyrir okkur hvort verið væri að fremja list eða ekki.
“Segjum að við verðum hrifnir af einhverri sýningunni. Hvort er það list sem knapinn gerir eða hesturinn?” spurði ég og fannst ég hafa króað hann af með skilgreiningu sína á reiðlist. “Knapinn, listamaðurinn, þarf að búa yfir ákveðinni lágmarks tækni eða handverki til að laða fram það sem í hestinum býr. Listin felst í útkomunni, því sem hrífur í fari hestsins, en ekki í handverkinu eða þeim ábendingum sem knapinn notar.” kom frá listskýrandanum. “Sumir knapar kunna heil ósköp af tækni en fremja aldrei heillandi gjörning á hestbaki. Eins finnst manni að skortur á tækni og þekkingu komi í veg fyrir að gjörningur geti orðið heillandi eins og hjá þessum.” sagði listskýrandinn um leið og hann benti, sem kynbótadómari, á harkalega niðurtöku á skeiði sem endaði í kýrstökki.
“Hvor hefur rétt fyrir sér ef bara annar okkar hrífst en hinn ekki?” spurði ég og þóttist góður. “Báðir hafa rétt fyrir sér og það er eðlilegt því fólk er mishrifnæmt og hefur auk þess mismikið vit á því sem er að gerast.“ kom að augabragði frá listskýrandanum. “Er nóg að hrífast af útkomunni og kalla þá útkomuna list, án þess að hafa þekkingu á handbragðinu? spurði ég nokkuð viss um að hnekkja nú kenningunni. “Já, það er nóg að hrífast. En nokkur þekking á viðfangsefninu hjálpar fólki oft að skilja hvað veldur hrifningunni og það kann að meta listina betur og vill endurupplifa hrifninguna ef það hefur færi á.”
Dómsvikan dugði okkur ekki til að klára umræðuna um reiðlistina. Hins vegar eigum við eftir að dæma saman seinna og þá verður hann meðal annars spurður hvort hann telji tengdforeldra sína listamenn því ég veit að hann er mjög hrifinn af konunni sinni. Einnig fyndist mér forvitnlegt að vita hvort þeir sem voru og eru kallaðir galdramenn á hestbaki séu í raun listamenn?
Og yfir til þín.
Er til reiðlist? Ef svo er sérð þú mun á góðu handverki og list?
Með kveðju
Magnús Lárusson
www.urvalshestar.is














