Gæðingakeppni Gusts fór fram í Glaðheimum í Kópavogi um helgina. Þátttaka var ágæt og áttu margir góðar sýningar. Unga kynslóðin stóð sig að vanda vel og vakti sigurvegari pollaflokks t.d. mikla athygli, auk þess sem sigurvegarinn í barnaflokki átti stórgóða sýningu á höfðingjanum Seið sem er orðinn 22 vetra gamall.
Í unglingaflokki sigraði Helena Ríkey sem er á sínu fyrsta ári í unglingaflokki, en í ungmennaflokki sigraði Elka Halldórsdóttir fjórða árið í röð – geri aðrir betur! Á gæðingavængnum var Ríkharður Flemming Jensen maður dagins, en hann sigraði í bæði A- og B- flokki gæðinga af miklu öryggi, sýndi frábæra reiðmennsku og stimplaði sig inn sem einn sterkasti keppnismaður Gustara um þessar mundir. Í unghrossaflokki sigraði glæsilegur foli undan Breka heitnum frá Hjalla, Vökull frá Kópavogi, foli sem minnir um margt á föður sinn og önnur varð lipur og hágeng tölthryssa undan Þristi frá Feti, aðeins fjögurra vetra gömul. Í skeiðinu var það svo Guðrún E. Jóhannsdóttir með hinn eina sanna Óðinn frá Efstadal og rann sprettinn hraðast.
Sá fáheyrði atburður átti sér stað í úrslitum í opinni töltkeppni að einn dómaranna mætti ekki til starfa, en sem betur fer er nokkur hópur vaskra Gustara með dómarapróf og stökk einn þeirra til og bjargaði málum svo hægt væri að ljúka keppninni. Feikna góðir hestar börðust um sigur í tölti og svo fór að núverandi Íslandsmeistarar í opnum flokki og ungmennaflokki urðu í 1. og 2. sæti í þeirri grein. Bikar fyrir hæstu ásetu og stjórnunareinkunn í barnaflokki hlaut Valdís Björk Guðmundsdóttir, en í unglingaflokki Berta María Waagfjörð.
Glæsilegasti hestur mótsins var valin af dómurum, Barón frá Kópavogi, en hann var sýndur af Rúnu Halldórsdóttur, vel til hafður gæðingur, mjúkur og þjáll, en jafnframt kraftmikill. Á heildina litið var mótið skemmtilegt og ánægjulegt var að sjá töluvert af hrossum úr ræktun Gustsmanna í verðlaunasætum, sýnd af eigendunum sjálfum eða öðrum Gustsfélögum.
Úrslit úr öllum greinum fylgja hér á eftir, en úrslit úr forkeppni má sjá á vef Gustara, www.gustarar.is.
Myndin sem hér fylgir sýnir Ríkharð Flemming Jensen með verðlaunagripina og verðlaunahestana, þá Sölva t.v. og Fjalar t.h. Ljósm.: HGG
Pollar Úrslit
1. Stefán Hólm Guðnason / Stakur frá Jarðbrú
2. Kristín Hermannsdóttir / Viður frá Reynisvatni
3. Hreiðar Levý Waagfjörð / Þyrill frá Kílhrauni
Unghross í tamningu Úrslit
1. Vökull frá Kópavogi 5v / Hlynur Þór Hjaltason
2. Bryndís frá Hofi I 4v / Þorvarður Guðmundsson
3. Sindri frá Kílhrauni 5v / Hreiðar Hugi Hreiðarsson
4. Kúnst frá Skógskoti 5v / Ólafur Andri Guðmundsson
5. Sigursveinn frá Svignaskarði 5v / Berglind Rósa Guðmundsd.
Börn Úrslit
1. Valdís B. Guðmundsdóttir /Seiður frá Sigmundarstöðum 8,83
2. Rúna Halldórsdóttir / Barón frá Kópavogi 8,54
3. Herborg Vera Leisdóttir / Viðey frá Hestheimum 8,16
4. Auður Ása Hreiðarsdóttir /Friðsemd frá Kjarnholtum I 8,12
Ungmenni Úrslit
1.Elka Halldórsdóttir / Krummi frá Kollaleiru 8,51
2.Sigurjón Bragi Geirsson / Vestri frá Kálfhóli 2 8,22
3.Ólafur Andri Guðmundsson / Taktur frá Syðsta-Ósi 8,21
4.Saga Össurardóttir / Háfeti frá Vorsabæ 1 8,20
5.Oddrún Eik Gylfadóttir / Höttur frá Álftárósi 7,80
B Flokkur Úrslit
1.Ríkharður Flemming Jensen / Fjalar frá Kalastaðakoti 8,60
2.Sölvi Sigurðarson / B-Moll (Moli) frá Vindási 8,50
3.Halldór Svansson / Stígur frá Reykjum 1 8,45
4.Bjarni Sigurðsson / Rokkur frá Hóli v/Dalvík 8,34
5.Jón Gísli Þorkelsson / Birta frá Kópavogi 8,29
Unglingar Úrslit
1. Helena Ríkey Leifsdóttir / Hringur frá Hólkoti 8,40
2. Berta María Waagfjörð / Stelkur frá Árgerði 8,30
3. Sigrún Gyða Sveinsdóttir / Toppur frá Svínafelli 2 8,14
4.Guðrún Hauksdóttir / Móa frá Skíðbakka 3 7,83
5.Bára Bryndís Kristjánsdóttir / Birta frá Flatey 1 7,78
A Flokkur Úrslit
1. Ríkharður Flemming Jensen / Sölvi frá Tjarnarlandi 8,61
2. Sigurjón Gylfason / Strokkur frá Hnjúkahlíð 8,46
3. Ólafur Andri Guðmundsson / Leiftur frá Búðardal 8,38
4. Bjarnleifur S. Bjarnleifsson / Vængur frá Köldukinn 8,26
5. Sveinbjörn Sveinbjörnsson / Rúmba frá Litlu-Tungu 2 8,25
Tölt Keppni 1.flokkur Úrslit
1. Berglind Rósa Guðmundsd. /Þjótandi frá Svignaskarði 7,28
2. Katla Gísladóttir / Órator frá Grafarkoti 7,22
3. Eyjólfur Þorsteinsson / Hárekur frá Vindási 7,11
4. Hulda G. Geirsdóttir /Gullskjóna frá St-Sandfelli 2 6,44
5. Lilja Sigurðardóttir /Hylling frá Vorsabæjarhjáleigu 6,22
100 m skeið:
1. Guðrún E. Jóhannsdóttir / Óðinn frá Efstadal 7,93 sek
2. Ólafur Andri Guðmundss. / Leiftur frá Búðardal 8,46
3. Guðmundur Helgi Ólafss. / Sóldögg frá Skógskoti 8,55
4. Jóhann Valdimarsson / Askur frá Efstadal 8,70
5. Daníel Ingi Smárason / Ála frá Svignaskarði 9.06
Ásetuverðlaun í barnaflokki: Valdís Björk Guðmundsdóttir
Ásetuverðlaun í unglingaflokki: Berta María Waagfjörð
Glæsilegasti hestur mótsins: Barón frá Kópavogi














