Rugl í ræktun hesta

Íslenzkir hestar hafa ekki fimm gangtegundir, heldur sex. Valhopp var áður fyrr aðalgangtegundin, þegar menn voru að flýta sér. Nú er það ekki einu sinni tekið með í mati á hestum. Ræktun hrossa stælir erlenda montskóla aflagðra kóngaríkja. Unaðslegt, langstígt,...

Íslenzkir hestar hafa ekki fimm gangtegundir, heldur sex. Valhopp var áður fyrr aðalgangtegundin, þegar menn voru að flýta sér. Nú er það ekki einu sinni tekið með í mati á hestum. Ræktun hrossa stælir erlenda montskóla aflagðra kóngaríkja.

Unaðslegt, langstígt, skríðandi tölt þykir ekki fínt. Í staðinn hristast menn á heimsleikum á hágengu hopptölti, er gerir hest og mann örmagna á hálftíma. Það getur gengið í minni háttar útreiðum kringum hesthúsið, en dugar hvorki í hestaferðum né í haustleitum. Ræktun hestsins er orðin rugl stælinga á þjálfun hesta frá Slóveníu og Andalúsíu.

Pistillinn birtist á vef Jónasar www.jonas.is í ágúst 2007