Í byrjun febrúar fer af stað Meistaradeild VÍS í fjórða skiptið með því sniði sem nú er. Meistaradeildin er búin að vinna sér sess í hugum hestamanna, bæði keppenda og áhorfenda. Upphafsmenn hennar hafa náð þeim markmiðum sem sett voru.
Henni var fyrst og fremst ætlað að auka hróður hestamennskunnar og gera hana sýnilegri í augum almennings. Það markmið hefur svo sannarlega tekist og hún hefur styrkst með hverju árinu, langflestir hestamenn fylgjast með framgangi hennar með einum eða öðrum hætti. Að fá þættina í sjónvarpið á síðasta ári var gríðarlega stórt skref og mikilvægt fyrir hestamenn.
Hestamenn vilja fá að vera teknir alvarlega sem íþróttamenn, og deild sem þessi gerir íþróttamanninn sýnilegri – árangur knapans skiptir öllu máli í stað þess að augu beinast jafnt að honum sem hesti hans á einu móti eða einni grein. Það er langt frá því að vera sjálfgefið að ná árangri í Meistaradeild VÍS, þeir ná lengst sem leggja mikið á sig við þjálfun og undirbúning, það vita þeir sem tekið hafa þátt. Meistaradeildin er krefjandi og tímafrek, en ef vel tekst til eru verðlaunin ríkuleg, bæði sem viðurkenning og í formi peninga.
Hugmyndin að endurvakningu Meistaradeildar vaknaði veturinn 2006 að Ingólfshvoli en þá voru þar staðarhaldarar Örn Karlsson og Jóhann G. Jóhannesson. Leitað var til Finns Ingólfssonar með stuðning en ljóst var að ef vel átti að standa að slíku móti, þurfti styrktaraðila til að gefa verðlaun og tryggja rekstur deildarinnar. Finnur tók vel í verkefnið og samningar náðust milli Vátryggingafélags Íslands og Meistaradeildar um samstarf.
Í lið með Erni og Jóhanni voru kallaðir nokkrir kunnir hestamenn til að hjálpa til við þróun deildarinnar, menn eins og Gunnar Arnarson, Trausti Þór Guðmundsson, Sigurbjörn Bárðarson, Erling Sigurðsson og fleiri. Í fyrstu stjórn voru ásamt Erni og Jóhanni, Hinrik Bragason, Sigurður Sigurðarson og Páll Bragi Hólmarsson. Páll Bragi dró sig reyndar útúr stjórn eftir fyrsta árið og í stað hans var kosinn Erlendur Árnason.
Það var mikið pælt, margir fundir setnir og hugmyndir margar og frjóar á fyrstu fundum stjórnar. En fyrsta árið tókst vonum framar. Stöð 2 og Ríkissjónvarpið sýndu frá úrslitum mótanna og það var gríðarleg eftirvænting fyrir hvert mót. Umgjörð mótsins var glæsileg og hér var greinilega komið mót sem ætti framtíð fyrir sér. Mót sem var hvort í senn áhorfendavænt og knapavænt. Stuttar lotur með úrvalsknöpum og hestakosti á þeim tíma sem oftast hefur verið tíðindalítill fyrir hestamenn,
„skemmtilegasta hestamótið hérlendis“ segir Fjölnir Þorgeirsson í viðtali við tímarit VÍS 2006.
Næstu tvö árin héldu mótin áfram að þróast, lítillegar breytingar voru gerðar milli ára og tókust þær í flestum tilfellum vel og voru mótunum til ávinnings. Mótin færðust t.d. aðeins framar milli ára til að þau kláruðust áður en önnur mót og kynbótasýningar hæfust. Úrtaka var færð frá janúar mánuði til síðsumars til að gefa þátttakendum sem komust inn meiri tíma til að undirbúa sig og til að leifa þeim að spreyta sig meðan keppnishestar þeirra voru í topp formi.
Aðrar smávægilegar breytingar voru gerðar en að leiðarljósi var þó ávallt að engin ástæða væri til að breyta því sem vel gengi. Enda gekk deildin betur og betur með hverju árinu, það sýnir sem best á þeim gríðarlega áhuga sem var á deildinni í vetur, reiðhöllin á Ingólfshvoli átti fullt í fangi með að taka á móti fólki á sama tíma og aðrir viðburður áttu í baráttu með að halda velli, minnkandi ásókn var á flesta viðburði vetrarins en þetta sýnir að Meistaradeildin hefur það sem til þarf. Þar koma fram bestu knaparnir og bestu hestarnir, skemmtunin er tryggð, knaparnir leggja allt undir – þeir koma með besta hestinn í húsinu og keppnisskapið tekið með á brautina. Þannig viljum við hafa það!
Samstarf við VÍS hefur gengið mjög vel og þeirra tengiliður, Rúnar Guðbrandsson lagt meira á sig en nokkur getur til ætlast af styrktaraðila mótsins. Rúnar er einnig markaðsmaður mikill og hefur verið gríðarlega öflugur tengiliður deildarinnar við önnur fyrirtæki og aðila sem komu deildinni til góða. Rúnar er nú kominn í stjórn Meistaradeildar sem er eðlileg þróun enda þekkir Rúnar deildina betur en margur annar. Stjórnin var stokkuð upp í lok tímabils 2008 þegar ákveðið var að skipta út þeim meðlimum stjórnar sem voru einnig þátttakendur í deildinni.
Þessi uppstokkun var gerð fyrir nokkurra þátta sakir, t.d. til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra og einnig þá staðreynd að fljótlega var ljóst hversu mikinn tíma það tekur fyrir knapa að taka þátt í keppninni. Að auki lenti gríðarlega mikil vinna á stjórnarmeðlimum við alla framkvæmd mótsins og varla á nokkurn mann leggjandi að vera á svo mörgum vígsstöðum í einu. Enn önnur ástæða var sú að meðlimir stjórnar voru búnir að sigla skútunni af stað, Jóhann, Hinrik, Sigurður og Erlendur stigu því úr stjórn eftir að hafa unnið mikið og gott starf fyrir deildina. Í stað þeirra koma þeir Hjörtur Bergstað, Finnur Ingólfsson, Tómas Ragnarsson og Rúnar Þór Guðbrandsson. Allt eru þetta menn sem þekkja deildina og þróun hennar mjög vel, þeir hafa mikla reynslu á mörgum sviðum, bæði sem við koma hestamennsku og almennum rekstri.
Meistaradeildin er nefnilega að mínu mati eitt stórt tækifæri fyrir fjölmarga aðila. Hestamennskan er ein af fjölmennustu íþróttagreinum landsins og hún hefur hlotið mjög mikla athygli víðsvegar í Evrópu. Hinir ýmsu erlendu hópar sem komu til landsins fóru á mót meistaradeildar til að fylgjast með þeirri þróun sem þar fer fram.
Danir hafa sett á fót „útibú“ meistaradeildar í Danmörku og sú deild hefur verið að þróast með sama hraða og hér heima. Þeim hefur tekist að fá mikla umfjöllun í dönskum fjölmiðlum og þar af leiðandi kynnt íslenska hestinn fyrir Dönum, bæði hestamönnum sem og öðrum. Það má nefna fleiri dæmi en greinilegt er að þessi stórskemmtilega keppni er orðin gluggi tækifæra bæði fyrir þá sem hyggjast nýta hana í markaðslegum tilgangi og ekki síður fyrir knapa þeirra sem öðlast kynningu og jafnvel frægð fyrir sjálfan sig og hesta sína.
Þannig að við sem íslenskir hestamenn skulum standa þétt við bak Meistaradeildar VÍS í vetur, hún eykur hróður okkar og ætti að vera stolt okkar þar sem hún sýnir í hnotskurn okkar bestu reiðmennsku og hestakost – hún er gluggi almennings að hestamönnum. Það er einnig ljóst að hin nýja stjórn er undir smásjá og þarf að gæta sín að halda fagmennsku á lofti hvar sem á hana er litið. Þeir stýra skipinu yfir hafið, skipi sem er nánast ósökkvandi – eins og Titanic var!
Fyrsta mótið verður 5. Febrúar næstkomandi, hver skyldi ná forystu? Í fyrsta skiptið er byrjað á smala þannig að það getur allt gerst. Mætir Siggi Sig með Suðra frá Holtsmúla í fjórganginn??
kær kveðja Elka




















