Í tilefni af Ís Landsmóti sem haldið verður næstkomandi laugardag á Svínavatni efnir veitingastaðurinn Sauðaþjófurinn til heljarinnar kjöt og kjötsúpuveislu sem hefst klukkan 17.00 bæði á föstudag og eftir mótið á laugardeginum. Ekki skemmir verðið sem er aðeins 1500 krónur og er innifalið í því miði á ball um kvöldið og 1 stk baukur af söngvatni.
Nú taka sig allir saman og skella sér á Blönduós um helgina.















