Seinna gangmál hjá Þristi frá Feti hefst mánudaginn 23. júlí nk., en ekki þann 20. eins og áður hafði verið auglýst. Hryssur á fyrra gangmáli verða sónaðar eftir hádegi og síðan er tekið við nýjum hryssum á milli kl. 17-21 sama dag. Þeir sem eiga hryssur á fyrra gangmáli eru beðnir um að vera tilbúnir til að sækja þær samdægurs skoðist þær fylfullar.
Hafi einhver ekki skilað inn útfylltri aðgangsbeiðni nú þegar ber að skila þeim þegar hryssan er sótt. Þeir sem eru að koma með hryssur inn á seinna gangmál eru minntir á að skila inn aðgangsbeiðnum útfylltum þegar komið er með hryssuna.
Ef hluthafar hafa framselt notkunarrétt sinn til þriðja aðila eru þeir vinsamlega beðnir um að láta viðkomandi vita af þessari breytingu.
Enn eru örfá pláss laus undir Þrist á seinna gangmáli og geta áhugasamir pantað hjá Huldu í síma 893 2028 eða á netfanginu skjoni@simnet.is. Allar nánari upplýsingar um Þrist fást á heimasíðunni www.fet.is/thristur.




















