Sérstök akstursleið verður sett upp á vegum Strætó bs vegna Landsmóts hestamanna sem haldið verður í Víðidal dagana 25.júní til 1.júlí. Ekið verður frá Lækjatorgi til Víðidals og stoppað á 6 stöðum á leiðinni. Sama leið verður ekin til baka. Þetta er gert til að mæta þörfum allra sem vilja komast á mótið.
Leiðin verður merkt: Lækjartorg-Víðidalur/Víðidalur-Lækjartorg
Sérstakt armband vegna mótsins gildir í alla vagna í kerfinu. Hvert armband jafngildi einu fari fyrir einn aðila í hvert sinn. Sama á við um sundstaði og söfn á höfuðborgarsvæðinu.. Að öðru leiti gilda hefðbundin fargjöld í þennan vagn.
Nánir upplýsingar um leiðina, kort og tímatöflur má sjá hér í pdf skjali.
Sjá einnig: http://www.straeto.is/um-fyrirtaekid/frettir/nr/1287
Nánari upplýsingar:
www.straeto.is
Þjónustustími Strætó bs. 5402700




















