Hér með tilkynnist að síðsumarsýning kynbótahrossa á Gaddstaðaflötum verður vikuna 11.-15. ágúst en ekki 18.-22. ágúst eins og áður hafði verið auglýst. Ástæðan fyrir þessari breytingu er sú að vegna 100 ára afmælis Búnaðarsambands Suðurlands stendur sambandið fyrir landbúnaðarsýningu á Gaddstaðaflötum helgina 22. til 24. ágúst.
Það er því ljóst að heilmikið ónæði getur orðið á svæðinu vikuna 18.-22. ágúst af þeim sökum.
Búnaðarsamband Suðurlands














