Miðvikudaginn 22. ágúst verða fimmtu og síðustu Skeiðleikar Skeiðfélagsins og Glitnis að Brávöllum félagssvæði Sleipnis á Selfossi. Keppt verður í 100m, 150m og 250m skeiði. Allar kappreiðar Skeiðfélagsins í sumar eru World Ranking.
Tekið verður við skráningum til klukkan 21:00 mánudaginn 20. ágúst í símum 664 8001 (Ragga) og 897 5439 (Maríanna). Einnig er hægt að skrá í gegnum tölvupóst prinsinn@toyotaselfossi.is og marianna@arbae.is. Skráningagjald er krónur 2.000,- á skráningu.
Greiðsla á skráningagjöldum skal hafa farið fram fyrir klukkan 12:00 þriðjudaginn 21. ágúst. Leggja skal skráningagjöld inn á reikning 0586-14-603238 kt. 620606-0140. Hægt er að láta senda greiðslukvittun á ofangreind netföng sé greitt í gegnum heimabanka. Í þeim tilvikum þegar greiðandi er annar en keppandi skal tilgreina kennitölu keppanda í tilvísun kvittunar. Greiðslukvittun er eina gilda sönnun þess að greiðsla hafi farið fram.
Meðfylgjandi er staðan á 10 efstu keppendum í stigasöfnun eftir fjóra fyrstu Skeiðleikana. Eins og sjá má getur allt gerst, enginn er öruggur í efsta sæti þar sem sigur gefur 10 stig.
Kveðja,
Stjórn Skeiðfélagsins
250m skeið Samtals
Einar Öder Magnússon Davíð frá Sveinatungu 30
Sigurbjörn Bárðarson Óðinn frá Búðardal 26
Sigursteinn Sumarliðason Kolbeinn frá Þóroddsstöðum 13
Guðrún Elín Jóhannsdóttir Óðinn frá Efsta-Dal I 12
Valdimar Bergstað Píla frá Stokkseyri 11
Þórarinn Eymundsson Ester frá Hólum 10
Ævar Guðjónsson Bergþór frá Feti 6
Axel Geirsson Losti II frá Norður-Hvammi 5
Fjölnir Þorgeirsson Lukku-Blesi frá Gýgjarhóli 5
Jóhann G. Jóhannsson Ákafi frá Lækjarmóti 5
150m skeið Samtals
Sigurbjörn Bárðarson Neisti frá Miðey 28
Haukur Baldvinsson Veigar frá Varmalæk 25
Ólafur Þórðarson Reykur frá Búlandi 22
Sigurður Óli Kristinsson Blökk frá Kílhrauni 16
Sigurður Vignir Matthíasson Snilld frá Gillastöðum 15
Davíð Matthíasson Vorboði frá Höfða 14
Eyjólfur Þorsteinsson Lukka frá Gýgjarhóli 8
Axel Geirsson Pjakkur frá Bakkakoti 6
Sigurður Vignir Matthíasson Ölver frá Stokkseyri 5
Sigurður Sigurðarson Spá frá Skíðbakka 1 4
100m skeið Samtals
Sigurður Sigurðarson Drífa frá Hafsteinsstöðum 30
Ragnar Tómasson Móses frá Grenstanga 22
Viðar Ingólfsson Hreimur frá Barkarstöðum 17
Árni Björn Pálsson Ás frá Hvoli 11
Þórarinn Eymundsson Ester frá Hólum 10
Axel Geirsson Losti II frá Norður-Hvammi 8
Sigurður Vignir Matthíasson Birtingur frá Selá 8
Sigurbjörn Bárðarson Flosi frá Keldudal 7
Daníel Ingi Smárason Hraðsuðuketill frá Borgarnesi 6
Guðrún Elín Jóhannsdóttir Óðinn frá Efsta-Dal I 6
Valdimar Bergstað Snjall frá Gili 6














