Þá er komið að fimmtu og síðustu Skeiðleikum Skeiðfélagsins og Glitnis. Þeir verða haldnir miðvikudaginn 22. ágúst að Brávöllum félagssvæði Sleipnis á Selfossi og hefst keppni klukkan 19:30 (Athugið breytta tímasetningu). Keppt verður í 250m, 150m og 100m skeiði. Allar kappreiðar Skeiðfélagsins í sumar eru World Ranking.
Tekið verður við skráningum til klukkan 21:00 í dag mánudaginn 20. ágúst í símum 664 8001 (Ragga) og 897 5439 (Maríanna). Einnig er hægt að skrá í gegnum tölvupóst prinsinn@toyotaselfossi.is og marianna@arbae.is. Skráningagjald er krónur 2.000,- á skráningu.
Greiðsla á skráningagjöldum skal hafa farið fram fyrir klukkan 12:00 þriðjudaginn 21. ágúst. Leggja skal skráningagjöld inn á reikning 0586-14-603238 kt. 620606-0140. Hægt er að láta senda greiðslukvittun á ofangreind netföng sé greitt í gegnum heimabanka. Í þeim tilvikum þegar greiðandi er annar en keppandi skal tilgreina kennitölu keppanda í tilvísun kvittunar. Greiðslukvittun er eina gilda sönnun þess að greiðsla hafi farið fram.
Kveðja,
Stjórn Skeiðfélagsins














