Skeiðleikar Skeiðfélagsins og Glitnis 4. júlí

Miðvikudaginn 4. júlí verða þriðju Skeiðleikar Skeiðfélagsins og Glitnis að Brávöllum félagssvæði Sleipnis á Selfossi og hefst keppni klukkan 20:00. Keppt verður í 100m, 150m og 250m skeiði. Allar kappreiðar Skeiðfélagsins í sumar eru World Ranking. Tekið verður við skráningum...

Miðvikudaginn 4. júlí verða þriðju Skeiðleikar Skeiðfélagsins og Glitnis að Brávöllum félagssvæði Sleipnis á Selfossi og hefst keppni klukkan 20:00. Keppt verður í 100m, 150m og 250m skeiði. Allar kappreiðar Skeiðfélagsins í sumar eru World Ranking.

Tekið verður við skráningum til klukkan 21:00 mánudaginn 2. júlí í símum 664 8001 og 897 5439. Einnig er hægt að skrá í gegnum tölvupóst prinsinn@toyotaselfossi.is og marianna@velar.is. Skráningagjald er krónur 2.000,- á skráningu.

Greiðsla á skráningagjöldum skal hafa farið fram fyrir klukkan 12:00 þriðjudaginn 3. júlí. Leggja skal skráningagjöld inn á reikning 0586-14-603238 kt. 620606-0140. Hægt er að láta senda greiðslukvittun á ofangreind netföng sé greitt í gegnum heimabanka. Í þeim tilvikum þegar greiðandi er annar en keppandi skal tilgreina kennitölu keppanda í tilvísun kvittunar. Greiðslukvittun er eina gilda sönnun þess að greiðsla hafi farið fram.