Hestamenn eru minntir á að skráning í gæðingakeppni Gusts fer fram í kvöld í Helgukoti, litla salnum á neðri hæð reiðhallarinnar, í Glaðheimum. Tekið verður við skráningum á milli kl. 20 – 22. Á sama tíma er hægt að skrá í opna töltkeppni og skeið í síma 848-2897. Skráningargjald er kr. 2000 á hest í alla flokka/greinar, en frítt er í pollaflokk.
Keppt verður í eftirtöldum flokkum:
Opin töltkeppni:
-Meistaraflokkur
-Opinn flokkur
Opið skeið:
100 m flugskeið
150 m skeið
Gæðingakeppni Gusts:
A-flokkur
B-flokkur
Ungmennaflokkur
Unglingaflokkur
Barnaflokkur
Pollaflokkur
Unghross í tamningu
Þátttökurétt í gæðingakeppni eiga hestar í eigu skuldlausra Gustsfélaga. Tölt og skeið er opið öllum.
Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður opnar greinar eða sameina flokka ef skráning er ekki næg.
Gefa þarf upp IS nr. hests og kt. og síma knapa við skráningu. Skráningargjald greiðist einnig við skráningu.
Allar nánari upplýsingar er að finna á www.gustarar.is og þar verður dagskrá mótsins birt þegar nær dregur.














