Skráning á Íslandsmót yngri flokka hjá Mána

Skráning á Íslandsmót yngri flokka hjá Hestamannafélaginu Mána verður þriðjudaginn 12. júní reiðhöllinni frá klukkan 20:00 til 21:00. Tekið er einnig við skráningum í síma 861-2030 og eða 825-0011. Skráningargjald er krónur 3.000,- á skráningu og skráning telst ekki gild...

Skráning á Íslandsmót yngri flokka hjá Hestamannafélaginu Mána verður þriðjudaginn 12. júní reiðhöllinni frá klukkan 20:00 til 21:00. Tekið er einnig við skráningum í síma 861-2030 og eða 825-0011.

Skráningargjald er krónur 3.000,- á skráningu og skráning telst ekki gild fyrr en skráningargjald er greitt

Keppendum er bent á að öll hross þurfa að vera grunnskráð og að gefa þarf upp ISnúmer við skráningu.

Keppt verður í eftirfarandi greinum:

Barnaflokkur (13 ára á keppnisárinu og yngri):

Tölt T1, fjórgangur V1 og fimi A.

Unglingaflokkur (14-17 ára á keppnisárinu):

Tölt T1, fjórgangur V1, fimmgangur F1, gæðingaskeið PP1 og fimi A.

Ungmennaflokkur (18-21 árs á keppnisárinu):

Tölt T1, slaktaumatölt T2, fjórgangur V1, fimmgangur F1, gæðingaskeið PP1, 100 m skeið PP2 og fimi A2.

Mótshaldarar áskilja sér rétt til að fella niður keppnisgreinar ef þátttaka er ekki næg.