Næsta sölusýning Hest.is og Hestafrétta verður haldin 23. september næstkomandi, sem er fimmtudagskvöld fyrir Laufskálarétt. Eins og áður hefur tíðkast veður sýningin tekin upp og sýnd hér á Hestafréttum.
Einnig er stefnt að því að vera með sýninguna í beinni útsendingu.
Skráningargjald er 10.000 kr. og inní því verði er upptaka af hrossinu einu og sér ásamt kynningu á www.hest.is Sölusýningin er þar af leiðandi kynningagluggi fyrir hrossið í tvo mánuði eftir sýningu, en í mörgum tilfellum selst hrossið í kjölfar sýningar en ekki á sýningunni sjálfri.
Sölusýningin verður nánast auglýst síðar.














