Skeifudagurinn var hátíðlegur haldinn við Hólaskóla fyrir skemmstu og var þar saman kominn stór hópur glæsihesta og knapa sem sýndu, hver öðrum betur, bestu eiginleika gæðingsins sem þeir hafa verið að temja og þjálfa í vetur.
Það var mikil stemming í Reiðhöll Hólaskóla þegar fyrsta árs nemendur hrossaræktardeildar skólans héldu þar sína raunverulegu uppskeruhátíð eftir vetrarstarfið. Að þessu sinni þreyttu tuttugu og átta nemendur lokapróf í reiðmennsku, en um þriðjungur nemenda á hrossaræktarbraut er erlendur, frá sex þjóðlöndum auk Íslands.
Samspil og reiðlist
Dagskráin hófst með reiðsýningu þar sem sýnt var samspil manns og hests, en síðan tók við fjórgangssýning, þjálfun og reiðlist en síðast fyrir verðlaunaafhendingu var úrslitakeppni í gæðingafimi, en í úrslitin komust þeir fimm nemendur sem hæsta einkunn hlutu á verklegu prófi á nemendahestum. Augljóst var að nemendur höfðu lagt gífurlega vinnu í að gera sýninguna sem best úr garði og sem allra glæsilegasta.
Í úrslit í gæðingafimi komust fimm keppendur: Bylgja Gauksdóttir á Hnotu frá Garðabæ, hún sigraði, Sonja Líndal Þórisdóttir á Dagrós frá Stangarholti varð í öðru sæti, og Anna Wohlert á Spegli frá Ármóti í því þriðja. Hlutu allir fimm keppendurnir sem í úrslit komust veglega verðlaunagripi.
Þá voru veitt verðlaun fyrir ásetu og reiðmennskuverðlaun og hlaut Bylgja Gauksdóttir þau en Eiðfaxabikarinn hlaut að þessu sinni Elín Hrönn Sigurðardóttir.
Glæsilegur árangur
Mjög hörð keppni var í sjálfri keppninni, sem kennd er við Morgunblaðsskeifuna, en það eru verðlaun sem veitt hafa verið við skólann allar götur frá árinu 1958. Að baki þessarar viðurkenningar liggur besti árangur nemanda í öllum prófum í þremur reiðmennskuáföngum skólans, alls ellefu einingum.
Þar urðu úrslit þau að efst stóð Sonja Líndal Þórisdóttir, skeifuhafi ársins 2007, með einkunnina 9,31, þá Anna Wohlert með einkunnina 9,12 og Bylgja Gauksdóttir hlaut einkunnina 9,01 og varð þriðja.
Víkingur Gunnarsson er deildarstjóri Hrossaræktarbrautar, en kennarar eru Mette Mannseth, Artemisiu Bertus og Þórarinn Eymundsson, en hann var kynnir og stjórnandi sýningarinnar.
Þórarinn Eymundsson kennari sagði árangur nemendanna í Skeifukeppninni mjög glæsilegan, að baki hjá hverjum nemanda væru um tvö hundruð og fimmtíu verklegar kennslustundir á vetrinum, auk verulegs bóklegs náms sem væri um tuttugu og fimm prósent námsefnisins. Þá sagði hann skólann búa svo vel að hafa innan sinna vébanda þrjátíu ferfætta kennara, en skólinn á nú þrjátíu þrautþjálfaða kennsluhesta, og sagði Þórarinn það auðvelda mjög starfið þegar hestarnir vissu til hvers væri ætlast, þekktu námsefnið, og yrði því kennslan mun markvissari þegar hún kæmi bæði frá kennaranum og hestinum.
Greinin birtist í Morgunblaðinu í dag.




















