Spáir líflegri hrossasölu

„ÉG heyri á hrossakaupmönnum erlendis sem hafa lítið keypt hross hérlendis á undanförnum árum að nú vilja þeir koma og kaupa,“ segir Guðlaugur Antonsson, landsráðunautur í hrossarækt, en hann býst við miklum fjölda útlendinga á Landsmót hestamanna, sem fram fer...

„ÉG heyri á hrossakaupmönnum erlendis sem hafa lítið keypt hross hérlendis á undanförnum árum að nú vilja þeir koma og kaupa,“ segir Guðlaugur Antonsson, landsráðunautur í hrossarækt, en hann býst við miklum fjölda útlendinga á Landsmót hestamanna, sem fram fer á Hellu í sumar, og um leið líflegri hrossasölu. Erlendir kaupendur horfi nú fram á að staða íslensku krónunnar verði þeim hagstæð og það muni jafna stöðuna hjá hrossaræktendum því nokkur samdráttur hafi verið í sölu innanlands vegna efnahagsástands.

Guðlaugur segir ræktendur íslenska hestsins alltaf eiga í smábaráttu við að hrista smáhestaímyndina af sér og hér áður hafi útlendingar ekki litið við hesti sem náði ekki 140 cm hæð á bandmáli. Íslenski hesturinn stækkaði mikið á 20. öldinni og þar kemur að sögn Guðlaugs ekki bara ræktun til, t.d. eigi rúlluheysverkun þar stóran þátt.

Grein birtist í Morgunblaðinu 19. maí 2008