Spjall- og gleðifundur Glaðs og Hrossaræktarsambandsins

Hestamannafélagið Glaður og Hrossaræktarsamband Dalamanna ætla að halda sameiginlegan félagsfund í Dalabúð að kvöldi föstudagsins 1. maí. Hugmyndin er að borða saman kvöldverð, ræða um árangur í ræktun og keppni á síðastliðnu starfsári, veita viðurkenningar og síðast en ekki síst...

Hestamannafélagið Glaður og Hrossaræktarsamband Dalamanna ætla að halda sameiginlegan félagsfund í Dalabúð að kvöldi föstudagsins 1. maí. Hugmyndin er að borða saman kvöldverð, ræða um árangur í ræktun og keppni á síðastliðnu starfsári, veita viðurkenningar og síðast en ekki síst að eiga saman skemmtilega kvöldstund. Aðgangseyrir kr. 2.500,- (fyrir matinn). Húsið opnar kl. 20:00, borðhald hefst kl. 20:30. Félagsmenn beggja félaga eru hvattir til að mæta!